Prjónahönnuðurinn Tinna Laufdal hannaði peysuna Skjól en hönnunin er í skærum litum og með einkennandi mynstri.
Markmið herferðarinnar er að vekja samfélagið til vitundar um kerfisbundið ofbeldismynstur í nánum samböndum.
Með því að kaupa uppskriftina styrkir maður starfsemi Kvennaathvarfsins og hver prjónuð peysa er sýnileg samstaða með konum sem búa við ofbeldi.
Blaðamaður ákvað að slá á þráðinn til Lindu Drafnar Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra Kvennaathvarfsins, og ræða við hana um þær frábæru viðtökur sem uppskriftin hefur hlotið.
„Þetta er búið að vera algjört ævintýri. Í gegnum tíðina höfum við fundið fyrir miklum stuðningi í samfélaginu við Kvennaathvarfið.
Síðustu misseri höfum við verið að safna fyrir nýju athvarfi sem við flytjum í núna í ágúst en það er hreinlega samfélaginu að þakka. Fólk hefur staðið við bakið á okkur og með stuðningi sent okkur þessi skilaboð, að það standi með okkur í að þjónusta konur og börn sem þurfa að flýja ofbeldi.“
Uppskriftin nýtur gríðarlegra vinsælda um þessar mundir og má segja að þetta sé prjónahreyfing ársins en seldar hafa verið yfir 5.000 uppskriftir.
Fær hlýtt í hjartað
Borið hefur á skorti á uppgefnu garni í uppskriftina og hafa einhverjar prjónabúðir þurft að panta meira að utan með stuttum fyrirvara. Búið er að koma upp sérstökum fésbókarhópum, þar sem fólk getur beðið um ráð og aðstoð, sýnt öðrum sínar Skjólspeysur eða spjallað um uppskriftina og litasamsetningar.
Einnig hafa verið skipulagðir ýmsir viðburðir í kringum herferðina, eins og prjónasamverustundir. Linda segir herferðina einmitt vera að ná markmiði sínu með því að sameina fólk.
„Við viljum með þessu styrkja bönd á milli fólks, að það komi saman og finni þessa fallegu orku. Maður fær hlýtt í hjartað þegar maður finnur fyrir þessum samhug og samkennd.
Á tímum þar sem við erum ósammála um ansi margt í samfélaginu erum við samt sammála um þetta, að berjast gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum.“
Ítarlegra viðtal við Lindu er í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina.
