„Svíþjóðardemókratar hafa í dag formlega eignast íslenskan systurflokk“
Fyrrum leiðtogi Svíþjóðardemókrata fagnar inngöngu Miðflokksins í ECR-flokkinn. Flokkurinn hefur beðist afsökunar á tengslum við nýnasisma og ver nú sænsku ríkisstjórnina falli.
Mattias Karlsson, þingmaður Svíþjóðardemókrata og fyrrum leiðtogi flokksins, fagnar inngöngu Miðflokksins í ECR-flokkinn, Evrópuflokk íhaldsflokka.
„Svíþjóðardemókratar hafa í dag formlega eignast íslenskan systurflokk,“ skrifar Karlsson á samfélagsmiðilinn X. „Á sama tíma stíga Sannir Finnar og Danmerkurdemókratar nýtt skref til að staðfesta hollustu sína við ECR-flokkinn. Skref sem SD tók árið 2019, en var lengi vel einn á Norðurlöndunum. Góður dagur fyrir norræna íhaldsstefnu og norræna íhaldssamvinnu á evrópskum vettvangi.“
Eins og Heimildin greindi frá á þriðjudag er Miðflokkurinn orðinn formlegur meðlimur ECR-flokksins en Evrópuflokkurinn tilkynnti um aðild hans ásamt Sönnum Finnum í Finnlandi og Danmerkurdemókrötum í Danmörku. Flokkurinn er fjármagnaður af Evrópusambandinu að hluta en vill breyta ESB til að draga úr umsvifum þess með áherslum á fullveldi þjóðríkja. Á meðal annarra aðildarflokka eru Lög og regla í Póllandi, Bræðralag Ítalíu, sem er flokkur Giorgiu Meloni forsætisráðherra, og Svíþjóðardemókratar. Á heimsvísu eru …