Hann niðurlægði og gerði lítið úr stúlkum og konum. Svavar Knútur og er víst tónlistamaður, þekki ekki manninn. Las fréttina um hann í Nútímanum.
Umfjöllunarefnið er konur og frisbígolf. Eitt sem Svavar Knútur staðhæfir er að engar konur tala um þátttöku karlmanna, sem segjast konur, í íþróttinni. Til að koma skoðun sinni á framfæri finnst honum mikils vert að gera lítið úr stúlkum og konum.
Velti má fyrir sér hvort tónlistarmenn læri ekki líffræði, því Svavar virðist ekki vita að karlmaður hafi meiri vöðvamassa, styrk, þol o.s.frv. Að karlmaður hafi líkamlega yfirburði fram yfir konu. Í það minnsta er talað um það í sambandi við nauðganir og heimilisofbeldi. Kannski gildir annað í íþróttum.
Visindi og rannsóknir sýna fram á líkamlega yfirburði karlmanns, fyrir utan það, nóg að nota hyggjuvitið og eigin augu.
Litlir fuglar sem komu úr sitt hvorri áttinni hvísluðu, forsvarsmenn Reykjavíkurborgar hóta íþróttafélögunum ef félagsmenn eða forsvarsmenn félaga tala m.a. um umrædda karla sem segjast konur og þá er styrkur borgarinnar í hættu. Kannski er komin skýring á af hverju konur í íþróttum tjá sig ekki vegna þátttöku karlmanna, sem segjast konur, í kvennflokki.
Kona sem stundar íþróttina í borginni var spurð um hótun borgarinnar og svarið var: ,,…en þetta er rétt RVK hótar íþróttafélögum ekki bara okkar heldur fleirum…“
Önnur kona sendi skilaboð, ,, Þá kom meðal annars fram að þau fá styrk frá borginni og ef þær mótmæltu þá missti sambandið styrkinn.“
Miðað við hver stjórnar borginni þá kemur þetta ekki á óvart. Flokkarnir sem sitja við ákvörðunarborðið eru fylgjandi trans hugmyndafræðinni, sem lýgur að fólki. Karl getur verið kona og kona karl. Jafn ólíklegt og að fíll geti verið þröstur og þröstur fíll.
Blindur maður sér trans væðingu borgarinnar, m.a. með störfum Mannréttindaskrifstounni og Jafnréttisskóla borgarinnar. Gæluverkefni.
Þvingunaraðgerð borgarinnar til að þagga niður í stúlkum og konum, er það líðandi? Ein af skýringunum af hverju konur þegja. Önnur skýring er trúleg sú meðferð sem þær fá, opni þær munninn. Svavar Knútur er lifandi dæmi, með færslu sinni, á hverju stúlkur og konur eiga von á. Gera lítið úr konum, þær ekki teknar trúarnlega, kallaðar fordómafullar o.s.frv. Og, vilja konur það? Nei alls ekki.
Hér má sjá svar karlmanns við færslu hjá konu. Að sjálfsögðu eru það ekki fordómar að bjóða konur velkomnar á æfingar, en að sjálfsögðu eru það konur með XX litninga, því aðrar konur eru ekki til. Hvað manninum gengur til má hver og einn ráða í.

Nú liggur á að losna við þá stjórnmálaflokka sem fara fyrir borginni. Kjósið flokka sem virða mannréttindi, sanngirni og réttláta keppni kvenna í íþróttum. Kynjaskipta flokka, karla og kvenna og engin frávik.