Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri á Seltjarnarnesi og oddviti Sjálfstæðisflokksins þar, er með eiginkonu sína, Maríu Björk Óskarsdóttur, sem næstráðanda hjá bænum en hún er framkvæmdastjóri þjónustusviðs bæjarins.
Samtals eru hjónin með fimm milljónir króna í tekjur á mánuði hjá bænum eða 60 milljónir á ári. Þannig hafa þau fengið 240 milljónir á kjörtímabilinu inn á sitt heimili!
Þetta gerist á sama tíma og hallinn á bæjarsjóði Seltjarnarness hefur verið vel á annað þúsund milljónir króna á kjörtímabilinu.
Mörgum íbúum og kjósendum á Nesinu blöskrar þetta ráðslag og treysta sér ekki til að styðja flokkinn í komandi kosningum, jafnvel fólk sem hefur kosið Sjálfstæðisflokkinn í áratugi. Margir gerðu alvarlegar athugasemdir við það í upphafi kjörtímabilsins að eiginkona bæjarstjórans sé hans næstráðandi. Þór mun hafa fullvissað gagnrýnendur að vitaskuld yrði þetta ekki svona til lengdar. Konan hans hefði verið starfandi hjá bænum áður en hann tók við bæjarstjórastarfinu og nú þyrfti hún bara að fá smá ráðrúm til að finna sér annað starf. Síðan eru liðin fjögur ár, hallarekstur bæjarins hátt á annað þúsund milljónir og 240 milljónir hafa streymt inn á heimili bæjarstjórahjónanna.
Svarthöfði er umburðarlyndur maður og hann hefur fullan skilning á því að einhvern tíma geti tekið að finna annað starf fyrir eiginkonuna. Þá sér hann heldur ekki ofsjónum yfir því að hjónin skipti á milli sín fimm milljónum á mánuði. Það er dýrt að lifa á Íslandi. Svo má ekki gleyma því að hluti þessara fjármuna rennur aftur inn í bæjarsjóð í formi útsvars og fasteignagjalda – bara svo öllu sé til haga haldið.
Svarthöfða hefur borist til eyrna gagnrýni á að bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi, sem er 4500 manna bær, skuli búa við sömu starfskjör (þrjár milljónir á mánuði) og borgarstjórinn í Reykjavík, sem er 140 þúsund manna borg, eða ríflega 31 sinnum fjölmennari en Nesið. Það er hins vegar engin ástæða til að gera lítið úr starfi bæjarstjórans. Það er í mörg horn að líta í einu sveitarfélagi, auk þess sem spyrja má hvort það sé ekki álag á einn mann að þurfa að verkstýra eiginkonu sinni?
Einhverjir hafa haft af því að það kunni að flækja nokkuð starfsaðstæður undirmanna eiginkonu bæjarstjórans að ef þeir telja sig þurf að kvarta undan yfirmanni sínum neyðast þeir til að kvarta til eiginmanns yfirmannsins.
Svarthöfði hefur hins vegar fulla trú á því að bæjarstjórinn sé fullkomlega óvilhallur og hlutlaus og fráleitt sé að eiginkonan njóti fjölskyldustöðu sinnar á vinnustað. Lítið er annars traust fólks á fagmennsku okkar bestu manna.
Svarthöfði er þess fullviss að peningum Seltirninga er vel varið inn á heimili bæjarstjórahjónanna og minnir á að verður er verkamaðurinn launa sinna.