Rúmlega 400 hafa greitt atkvæði utan kjörfundar um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið - en hátt í þrjú hundruð kjörstaðir voru opnaðir í dag. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir aðsóknina mikla.
Enn og aftur göngum við að kjörborðinu, í 27. skiptið á þessari öld og í dag hófst þjóðaratkvæðagreiðsla utankjörfundar um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið - en kosningarnar verða svo 29. ágúst.
50 kjörstaðir innanlands og um 240 erlendis
Hægt er að greiða atkvæði á um 50 stöðum innanlands, á skrifstofum sýslumanna.
„Erlendis eru, held ég, um 240 staðir. Þar er hægt að kjósa á öllum skrifstofum sendiráða og hjá ræðismönnum,“ segir Ástríður Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar. „Ætli þetta fari ekki bara vel af stað, það er búið að kynna þetta vel og það eru líklega margir sem bíða í ofvæni eftir að komast að kjósa.“
Níunda þjóðaratkvæðagreiðslan
Þetta er níunda þjóðaratkvæðagreiðslan hér á landi og sú fjórða á þessari öld. Og fyrirkomulagið í þjóðaratkvæðagreiðslum er svipað og í öðrum kosningum.
Um 272.000 eru á kjörskrá og samtals greiddu 408 atkvæði á kjörstöðum víða um land í dag. Á stærsta kjörstaðnum - hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu kusu 266 sem er fimm sinnum meira en á fyrsta degi síðustu utankjörstaðaratkvæðagreiðslu.
„Á fyrsta degi fyrir sveitarstjórnarkosingarnar sem voru í vor voru um 52 sem kusu hjá okkur hér í Hlíðarsmára,“ segir Sigríður Kristinsdóttir sem er sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu.
Þannig að góða veðrið rekur fólk á kjörstað - eða hvað? „Það gæti verið.“
„Það er áhugi fyrir þessum kosningum“
„Við höfum fengið talsvert af fyrirspurnum um hvenær utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst og það er áhugi fyrir þessum kosningum,“ segir Birna Kristín Einarsdóttir fulltrúi hjá sýslumanninum á Austurlandi. „Það byrjaði bara strax í morgun og nú þegar hafa nokkrir kosið.“
Flestir þeirra kjósenda sem voru teknir tali hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í dag kusu utan kjörfundar því þeir verða á ferðalögum á kjördag. Á kjörseðlinum er hægt að velja milli tveggja kosta - já eða nei og allur gangur var á því hjá viðmælendum fréttastofu hvor kosturinn varð fyrir valinu.