Fjórða barnið hefur nú slegist í hópinn hjá listaparinu Þórdísi Björku Þorfinnsdóttur og Júlí Heiðari Halldórssyni. Það er Júlí sem greinir frá gleðitíðindunum á Facebook en þar segir hann að dóttirin hafi komið í heiminn eldsnemma morguns þann 14. júlí. Móður og barni heilsast vel og í reynd svo vel að Þórdís mætti í brúðkaup í gær.
Sumarbarn listaparsins er komið í heiminn - „Henti í brandara þegar hausinn stóð hálfur út“