Lægð á Grænlandshafi hefur áhrif á veður og vinda þegar gengið verður til kosninga um allt land í dag. Sunnan- og vestanlands verður suðaustanátt á bilinu 8 til 15 metrar á sekúndu með súld eða rigningu á köflum. Hiti 6 til 9 stig.
Á Norður- og Norðausturlandi verður hins vegar hægari vindur og bjartviðri. Hiti verður á bilinu 4 til 13 stig, hlýjast fyrir norðan.
Síðdegis og í kvöld dregur úr vindi og úrkomu. Á morgun verður austlæg eða breytileg átt, víða 3 til 10 metrar á sekúndu og á einhverjum stöðum má búast við stöku skúrum. Á Norðurlandi verður að mestu léttskýjað.