Í kvöldfréttum Sýnar var sýnt frá vígslu nýs þjóðvegar þvert yfir Hornafjörð. Mannfjöldi mætti til að fylgjast með borðaklippingu, ræðuhöldum og kórsöng en athöfnin fór fram á nýju Hornafjarðarfljótsbrúnni. Hún er 250 metra löng og lengst fjögurra brúa á nýja vegarkaflanum en alls voru um átján kílómetrar lagðir af nýjum vegum.
Þau sem klipptu á borðann voru Ragnar Þór Ingólfsson, starfandi innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri og Gauti Árnason, formaður bæjarráðs Hornafjarðar. Svo skemmtilega vildi til að skærin sem ráðherrann notaði voru einnig notuð árið 1961 við vígslu fyrri brúarinnar yfir Hornafjarðarfljót.
Að borðaklippingunni lokinni ók fyrsti bílinn formlega yfir brúna. Það var vörubíll af Ford-gerð, árgerð 1956. Hann hafði einnig verið notaður í vegagerð sem fylgdi brúarsmíðinni árið 1961 og kom frá bænum Svínafelli í Nesjum í Hornafirði.
Við vígsluathöfnina fengu gestir að hlýða á söng Kvennakórs Hornafjarðar. Konurnar hafa vakið athygli í héraði fyrir að syngja burt einbreiðu brýrnar. Núna tókst þeim að syngja þrjár þeirra burt.
Rætt var við borðaklipparana í sjónvarpsfrétt Sýnar en einnig við Karl Andreassen, forstjóra Ístaks, verktakans sem annaðist verkið, en það kostaði alls um tíu milljarða króna. Einnig má heyra brot af kórsöngnum hér í myndskeiðinu: