„Kolfinna var fyrst greind með krabbamein tveggja og hálfs árs og gekk í gegnum sex mánaða lyfjagjöf og fór í yfir þrjátíu geisla. Hún var svæfð í öllum geislunum, frá mánudegi til föstudags, svo var frí um helgar og hún vinnur það, enda algjör nagli,“ segir Hólmfríður Magnúsdóttir fyrrum atvinnukona í fótbolta í viðtali í Bítinu á Bylgjunni á mánudag.
Stendur hún nú fyrir styrktarlottói fyrir Kolfinnu Rán Færseth, 13 ára, og hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa. Í boði eru 124 vinningar, þar á meðal árituð treyja frá Glódísi Perlu Viggósdóttur, fyrirliða íslenska kvennalandsliðsins.

Eins og DV greindi frá föstudag mun allur ágóði renna í framtíðarsjóð fyrir Kolfinnu Rán.
Sjá einnig: Kolfinna Rán 13 ára glímir við krabbamein – Safnað í framtíðarsjóð með styrktarlottói
„Nú síðasta sumar greindist hún aftur og byrjaði í lyfjameðferð, alls átta lyfjameðferðir, og fór síðan til Svíþjóðar í aðgerð. Þar var tekinn stór hluti af lærleggnum, allt upp að mjaðmakúlunni var fjarlægt og í staðinn var settur sérsmíðaður íhlutur sem var framleiddur í Þýskalandi.“
Fyrir nokkrum vikum fór Kolfinna í myndatöku þar sem punktur fannst á lunganu sem fjarlægja þurfti með aðgerð. Segir Hólmfríður Kolfinnu hafa sýnt mikla seiglu í veikindum sínum.
Styrktarlottóið stendur til 15. júní og dregið verður út þann 16. júní. Miðinn kostar 2500 krónur.
Reikningsnúmer: 0511-14-120390
Kennitala: 200984-2859
Vinninga má sjá hér fyrir neðan.
