Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentur. Stýrivextir eru því komnir ú 7,75% í 8,0%. Þetta er í þriðja sinn sem vextir hafa verið hækkaðir á þessu ári. Fram kemur í tilkynningu frá Seðlabankanum að fjórir nefndarmenn hafi stutt þessa ákvörðun um að hækka stýrivexti en einn vildi halda vöxtum óbreyttum.Verðbólga hefur verið þrátlát og lengi yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands sem er 2,5%. Hefur verðbólgan verið yfir 5% allt árið og í júlí mældist verðbólga 5,3%.
Stýrivextir hækkaðir upp í 8%