Óprúttnum aðilum tókst að nema á brott kyrrsettan 36 tonna kranabíl með skipi frá Helguvík á síðasta ári án þess að nokkuð væri að gert. Bíllinn virðist nú sitja fastur á hafnarsvæði tollgæslunnar í Dakhla í Marokkó þar sem tækið er pappírslaust.
Það uppgötvaðist samdægurs að kraninn var horfinn. „Við sjáum samt á MarineTraffic að skip sem var í Helguvík er enn í lögsögunni og heyrum í sýslumanni sem bendir á Gæsluna. Við heyrum í Landhelgisgæslunni sem bendir á lögregluna. Við höfum samband við þá en ekkert gerist,“ segir Björgvin Gunnar Björgvinsson hjá BP Shipping.
Hann kveðst furða sig á því hvernig skip geti hirt tæki af slíkri stærð athugasemdalaust.
Lesa má nánar um málið á bls.6 í Morgunblaðinu í dag