Straumar og stefnur á afmælisdegi Davids Attenborough

Straumar og stefnur á afmælisdegi Davids Attenborough

Straumar og stefnur á afmælisdegi Davids Attenborough

Straumar og stefnur á afmælisdegi Davids Attenborough

Sir David Attenborough hóf feril sinn hjá Breska ríkisútvarpinu BBC um miðja síðustu öld og hefur ekki stoppað síðan. 

Attenborough átti farsælan feril hjá BBC og varð meðal annars yfirmaður BBC 2 skömmu eftir að þeirri rás var komið á laggirnar. Seinna varð hann yfirmaður dagskrárgerðar á sjónvarpsmiðlum BBC. Hann var orðaður við starf yfirmanns alls BBC en eftir að hafa viðurkennt fyrir bróður sínum, Richard Attenborough, leikara og kvikmyndaleikstjóra, að hann hefði lítinn áhuga á því starfi, sagði hann upp og varð sjálfstætt starfandi sjónvarpsþáttagerðarmaður. 

Eftir Attenborough og samverkafólk hans liggja ógleymanlegir heimildaþættir um lífríki jarðarinnar sem flest okkar höfum séð. Við horfum á þessa þætti full undrunar og áhuga og þeir ná til okkar á óviðjafnanlegan hátt. Attenborough hefur einstaka nærveru og það er eins og hann sé að tala við þig og bara þig þegar hann situr til dæmis með órangútanapa eða öðrum dýrum sem hann kemst í tæri við og segir frá lífi þeirra og háttum. 

Hann er fremri flestum við að halda okkur föngnum við skjáinn á meðan hann tekur okkur með sér inn í frumskóga, niður í hyldýpi sjávarins og áður en við vitum af erum við komin inn í miðja eyðimörk þar sem ekkert kvikt virðist geta lifað og samt finnur hann og sýnir okkur að sandurinn hreint og beint iðar af lífi. 

Við höfum skroppið með þessum ótrúlega manni inn á ísbreiður beggja pólanna og upp á tinda og hásléttur fjallgarða jarðarinnar. Það er vart sá staður á jörðinni sem Attenborough og samverkafólk hans hefur ekki heimsótt.

Kvikmyndatökufólkið sem vinnur við gerð þáttanna hefur frá öndverðu notað nýjustu og bestu tæki sem til eru á hverjum tíma. Útkoman eru framúrskarandi þættir sem munu standast tímans tönn vegna þess að þeir sýna lífríki jarðarinnar á þeim tímapunkti sem virðist ætla að verða vendipunktur sögunnar. 

Það er ekki síst vegna þess að okkur hefur ekki tekist að vinda ofan af því þrátefli sem stendur yfir um hversu miklu tjóni ágangur mannsins hefur valdið lífríki jarðarinnar.  En hvernig sem fer þá hafa þættir Attenboroughs auðveldað almenningi að skilja betur náttúru þessa einstaka hnattar sem við búum á. 

David Attenborough er baráttumaður af Guðs náð sem ber hag framtíðarinnar fyrir brjósti. Í myndbandinu sem hér er hengt við talar þessi aldni en síungi maður um ógnirnar sem að okkur steðja af miklum sannfæringarkrafti og honum er mikið niðri fyrir. 

Vendipunktur móður jarðar

Nú er baráttan um yfirráð á norðurslóðum hafin. Við höfum öll einhvern nasaþef af þeim breytingum sem eru að verða vegna loftslagsbreytinga á jörðinni. Uppsöfnun kolefnis í lofthjúpi jarðarinnar hefur gríðarleg áhrif á lífríkið og ekki sér fyrir endann á því ferli. 

Margt mun breytast á næstu árum og áratugum ef ekki tekst að stemma stigu við þessari þróun. Hér ætla ég að nefna eitt atriði sem getur haft í för með sér ávinning fyrir Íslendinga, enda er oft gott að nefna það sem jákvætt getur talist áður en talað er um það sem síðra gæti verið.

Grundvallarbreyting er að verða hvað snertir aðgang manna að Norðurheimskautinu vegna bráðnunar ísbreiðunnar þar. Siglingaleiðin um höfin norður af Íslandi gerist æ greiðari og þannig skapast möguleiki á að sigla flutningaskipum þangað sem það áður var óhugsandi. 

Það mun leiða til þess að siglingar frá Norður-Ameríku og Asíu verði mun hagkvæmari. Þór Jakobsson veðurfræðingur, sérfræðingur um hafís á norðurslóðum, benti á þennan möguleika í fjölda greina fyrir margt löngu ásamt öðrum vísindamönnum sem sáu þessar breytingar fyrir. 

Þór benti á Finnafjörð í Langanesbyggð á Austfjörðum sem kjörinn stað fyrir höfn til að þjónusta þau skip sem sigldu þessa norðurleið skammt undan Íslandsströndum. Nú er verið að skoða möguleika á að staðsetja stórskipahöfn á Norðausturlandi og enn kemur Finnafjörður til greina.

Upphlaup Donalds Trump Bandaríkjaforseta um yfirtöku Grænlands var ekki úr lausu lofti gripið. Sérfræðingar forsetans höfðu eflaust vakið athygli hans á því að norðurslóðir væru að komast í alfaraleið með hlýnun Norðurskautsins og bráðnun íss og þess vegna kjörið að ná undir sig svæði sem tryggðu Bandaríkjunum aukin afnot af nýju siglingaleiðinni. Grænland býr líka yfir miklum náttúruauðlindum sem gróðavænlegt væri að ná yfirráðum yfir.

Baráttufólk fyrir verndun náttúrunnar hefur bent á að aukin skipaumferð um þetta viðkvæma hafsvæði auki hættuna á alvarlegum náttúruspjöllum. Slys geti átt sér stað og vöruflutningaskip valda mengun.

Straumurinn sem er lífæð okkar

Einhver helsta ógnin sem steðjar að löndum sem liggja að Norður-Atlantshafi eru þær breytingar sem eru að verða á Golfstraumnum.

Golfstraumurinn er hlýr hafstraumur sem á upptök sín í Karíbahafi og rennur í norður og norðaustur um Atlantshaf. Ýmsir fræðimenn nota hugtakið Golfstraumur einungis um þann hluta hans sem nær frá Hatterashöfða í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum og norður fyrir Nýfundnaland. 

Sá hluti hans sem nær til Íslands er kallaður Norður-Atlantshafsstraumur, en hinn hlutinn, frá Karíbahafinu að Hatterashöfða er kallaður Flórídastraumur. Til hægðarauka höldum við okkur við að kalla þessa strauma báða Golfstrauminn. 

Vísindamenn sem hafa rannsakaða áhrif bráðnunar íss á Norðurheimskautinu og á Grænlandsjökli hafa komist að þeirri níðurstöðu að hún hefur afgerandi breytingar í för með sér. Smám saman hefur hægst á Golfstraumunum og spálíkön fræðimanna sýna fram á það að mikil hætta er á að þeir stöðvist alveg. 

Golfstraumurinn er ein lykilástæða þess að löndin við Norður-Atlantshaf eru byggileg. Rannsóknir vísindamanna hafa leitt í ljós að haldi fram sem horfir muni loftslagið þar breytast mikið. Í löndum á borð við Ísland muni vetur til að mynda verða töluvert kaldari en nú er. 

Evrópa liggur nokkuð norðarlega á hnettinum og þar er tiltölulega hlýtt miðað við önnur svæði jarðarinnar á svipaðri breiddargráðu.  Golfstraumurinn er lykillinn að því þar sem hann flytur hlýjan sjó frá suðlægari slóðum norður um Atlantshafið sem verður til þess að sjórinn er hlýrri en ella væri. 

Straumurinn hefur afgerandi áhrif á loftslagið á Íslandi sem er tiltölulega milt, sérstaklega á veturna, miðað við legu landsins. Því er nokkuð augljóst að Íslendingar byggju ekki við það loftslag sem hér ríkir nyti Golfstraumsins ekki við.

Og hvað gerist ef Golfstraumurinn stöðvast?

Hægt hefur mjög á Golfstraumnum og spár gera ráð fyrir að verði ekki undið ofan af þróuninni geti hann hreinlega stöðvast. Í nýjum rannsóknum er gert ráð fyrir því að verði Parísarsamkomulaginu frá 2016, fjölþjóðlegum samningi um losun kolefnis, fylgt, séu um 37% líkur á að þeir hafstraumar sem ná til Íslands frá suðlægum slóðum muni stöðvast. 

Við það munu miklar veðurfarslegar breytingar raungerast hér á landi. Haldi kolefnalosun út í andrúmsloftið áfram óbreytt eða óheft aukast líkurnar til mikilla muna. Þó nokkuð mun kólna hér á landi og verða mun harðbýlla. 

Þær breytingar munu hafa veruleg áhrif á allt lífríki landsins og sjávarins allt umhverfis það. Möguleikar í landbúnaði verða að líkindum mun minni en nú er. Atburðarásin mun án efa einnig hafa áhrif á fiskimiðin í kringum landið þar sem Golfstraumurinn hefur mikil áhrif. Allar líkur eru á því að möguleikar til fiskveiða dragist verulega saman. 

Niðurstöður rannsókna vísindamanna á undanförnum árum sýna að flæði Golfstraumsins hefur ekki verið hægara frá síðustu ísöld, sem lauk fyrir um það bil 10 þúsund árum. 

Breytingarnar munu ekki eiga sér stað á einu augabragði heldur verða þær yfir nokkurra ára tímabil. Gert er ráð fyrir heldur kaldranalegu útliti til framtíðar. Við getum gert ráð fyrir að finna fyrir breytingunum þegar á næstu árum og áratugum þótt þróunin sem spáð er geti tekið allt að 100 árum. 

Loftslagsmál og náttúruvernd hafa í raun verið mér hugleikin allt frá barnæsku. Vísindin um loftslagbreytingar af völdum manna eru hreint ekki ný af nálinni. Upp úr 1950 fengu vísindamenn þau tæki og tól í hendurnar sem þurfti til að rannsaka loftslagið fyrir alvöru. 

Fyrir þann tíma höfðu verið stundaðar rannsóknir og getgátum varpað fram um hugsanlegar loftslagsbreytingar af athöfnum mannkynsins.  Sú loftslagsþróun sem nú er að ná hámarki hófst með iðnbyltingunni undir lok 18. aldar þegar notkun kola jókst við að knýja verksmiðjur og allra handa tæki og tól. 

Nokkru síðar bættist brennsla olíu við og á síðustu öld hefur magn kolefnis í andrúmsloftinu aukist gríðarlega. Þetta ástand hefur mikla þýðingu fyrir okkur öll enda hefur ástandið sem skapast hefur, veruleg áhrif á nærumhverfi okkar. Hækkun sjávarborðs sem er rakið til bráðnunar íss á pólunum og á Grænlandsjökli hefur haft afgerandi afleiðingar fyrir mörg þau sem við strendur búa. Nokkur eyríki eru í eyðingarhættu af þeim völdum.

Framvindan er þannig ekki einskorðuð við norðlægar slóðir heldur er hún alheimsvandamál. Á ferðum mínum um Papúa Nýju-Gíneu, eyríki rétt norður af Ástralíu, kynntist ég fólki sem þegar hafði fundið fyrir töluverðum umskiptum. 

Ég hitti íbúa strandþorpa sem sögðu mér að sjávarborðið hefði hækkað svo mikið að útilokað var að nýta lengur ræktarland vegna ágangs sjávarins. Þau sýndu mér einnig greftrunarstaði sem höfðu orðið fyrir barðinu á hækkandi stöðu sjávar. 

Á þessari eyju í Kyrrahafinu býr fólk einnig í hálendi hátt yfir sjávarmáli þar sem malaría tók að blossa upp þar sem hennar hafði aldrei orðið áður vart. Hlýnun andrúmsloftsins varð til þess að moskítóflugan færði sig hærra upp í fjöllin og náði að dreifa þessum illvíga og oft mannskæða sjúkdómi þar sem hann þekktist ekki nema af afspurn áður.   

Þróunin er ógnarhröð, ekki síst í ljósi þess að háttalag mannskepnunnar hefur náð að umturna jafnvægi sem hefur haldist lítt breytt í náttúrunni um árþúsundir á örskömmum tíma.

Nokkrar öflugar alþjóðlegar ráðstefnur hafa verið haldnar til að ræða loftslagsmál og leggja á ráðin um hvað skuli gera til að snúa þessari þróun við en þær hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Heimurinn er enn síþyrstur í olíu til að knýja áfram framleiðslu- og farartæki. Kol eru enn notuð til orkuframleiðslu sem veldur miklum skaða. Mörg ríki hafa leitað annarra leiða til að stemma stigu við þessari þróun en það gengur hægt. 

Kjarnorkuver voru talin geta bjargað málunum um tíma en urðu ekki vinsæll kostur vegna slysa sem orðið hafa til dæmis í Chernobyl í Úkraínu og Fukushima í Japan. Geislavirkum úrgangi sem verður til við samruna kjarneindanna við orkuframleiðslu þarf að koma í örugga geymslu til mörg hundruð ef ekki þúsunda ára. Hugmyndinni um nýtingu kjarnorku hefur þó vaxið fiskur um hrygg á síðari árum.

Breytingar loftslags af manna völdum og afleiðingar þeirra eru heldur ekki umræðuefni sem vekur kátínu og sér í lagi vegna þess að hamrað er á okkur almenningi með áróðri sem gerir okkur öll samsek.  

Samsektin er álitin svipuð hvort sem við erum iðnjöfur sem stjórnar mengandi efnaverksmiðjum sem ganga fyrir kolum eða einstaklingur á Íslandi sem flokkar rusl, reynir að hjóla í vinnuna í snjóbyl með suðaustanofsaveður í fangið og kaupir slatta af dóti í Góða hirðinum. Þannig reynir sá að leggja sitt af mörkum við verndun náttúrunnar og viðnám við loftlagsvánni með því að minnka kolefnisfótspor sitt.

Fáir vita sennilega að það voru einmitt stóru olíufélögin sem hófu áróðurinn um áhrifin af kolefnisfótspori einstaklinga. BP eða British Petroleum fékk almannatengslafyrirtækið Ogilvy & Mather til liðs við sig til að einmitt sanna að það væru einstaklingar en ekki olíurisarnir sem ættu sökina á losun kolefnis sem væri að fara með allt til andskotans. 

Almenningi var gert kleift að reikna út kolefnisfótspor sitt með kolefnisfótsporareiknivélinni sem BP skaffaði líka. Þannig gátum við öll séð, svart á hvítu, hvað daglegt líf okkar, tómstundaiðja og ferðalög kostuðu jörðina. Þannig vorum við ekki aðeins meðsek heldur alsek um að koma heiminum í skrúfuna. Auðvitað voru það ekki risafyrirtækin sem auðgast enn á að selja okkur kolefnaeldsneyti sem báru sökina.  

Kvikmyndin Don´t look up sem var fyrst sýnd árið 2021 kemur upp í hugann. Hún er pólitísk satíra undir leikstjórn Adams McKay sem skrifaði handritið upp úr bók sem hann og David Sirota skrifuðu í sameiningu.

Myndin fjallar um það að loftsteinn stefnir til jarðarinnar sem mun granda öllu lífi skelli hann á henni. Myndin er dæmisaga og fjallar í rauninni um það sem við erum að ganga í gegnum varðandi loftslagsbreytingarnar sem nú eru að raungerast. 

Fólkinu sem myndin fjallar um er ráðlagt að hætta að horfa til himins og gleyma ógninni sem þeytist í átt til þeirra á ógnarhraða. Ekki líta upp. Þessu má líkja við það hvernig okkur er bent á að hafa ekki of miklar áhyggjur af loftslagsbreytingunum og halda einfaldlega ótrauð áfram neyslunni. Fjöldi fólks tekur undir og fullyrðir að loftslagsógnin sé gabb. Góður maður sagði eitt sinn; Það er ekkert víst að þetta klikki.

Hinn aldargamli David Attenborough á þakkir skildar fyrir að sýna okkur alla fegurð og töfra jarðarinnar og fyrir að reyna að vekja okkur til umhugsunar um þann skaða sem núverandi ástand loftslagsmála hefur áskapað veröldinni.

En við getum kannski öll prísað okkur sæl með að þegar Golfstraumurinn hættir loks að streyma að við potuðum þó niður nokkrum trjáhríslum, til að jafna út kolefnisfótsporið okkar. Nú er bara að vona að trén lifi af loftslagsbreytingarnar sem verða af völdum þess að Golfstraumurinn hættir að flæða umhverfis okkur. 

#afmælisdegi #attenborough #davids #stefnur #straumar


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/26583/straumar-og-stefnur-a-afmaelisdegi-david-attenborough/

📰 Aðrar fréttir

Þrjú lögðust gegn sniðgöngu Eurovision
📅 01.10.2026 👁️ 0
Þrjú lögðust gegn sniðgöngu Eurovision
Stjórn RÚV klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort fjölmiðillinn ætti áfram að sniðganga Eurovision-söngvakeppnina eða ekki. Meirihluti stjórnar greid...
Dæmd í Dan­mörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Dæmd í Dan­mörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila - Vísir
Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins kemur fram að um hafi verið að ræða karl og konu á vesturhluta Sjálands. Konan var dæmd fyrir að hafa selt spilin o...
„Hann var ekkert voðalega samvinnuþýður í fyrstu“
📅 01.10.2026 👁️ 0
„Hann var ekkert voðalega samvinnuþýður í fyrstu“
Næturvaktin var róleg hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en dagarnir geta boðið upp á fjölbreytt verkefni. Það sannaðist í Fossvogi í Reykjavík í fy...
Skýrar vís­bendingar að Íranir eigi hlut að máli - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Skýrar vís­bendingar að Íranir eigi hlut að máli - Vísir
Þetta er haft eftir Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands á BBC, sem veitti þó ekki frekari upplýsingar. Íranir hafa vísað þessum ásökunum á bug og...
Lægðin grynnist í dag en von á annarri - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Lægðin grynnist í dag en von á annarri - Vísir
Þetta er meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Gular viðvaranir eru í gildi á Norðurlandi eystra, Austurlandi a...
50 miljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal
📅 01.10.2026 👁️ 0
50 miljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal
50 miljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal Odd­viti Sam­fylk­ing­ar­inn­ar gagn­rýn­ir for­gagns­röð­un meiri­hlut­ans sem ætl­ar a...
Stormur á norðaustanverðu landinu og miðhálendinu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Stormur á norðaustanverðu landinu og miðhálendinu
Stormur geisar á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og miðhálendinu. Vindur er á bilinu 15-25 metrar á sekúndu og getur farið yfir 35 metra ...
Tvær sómalskar stúlkur dæmdar eftir hópárásir á 13 ára stúlku – Börn ítrekað niðurlægð og upptökum dreift
📅 01.10.2026 👁️ 3
Tvær sómalskar stúlkur dæmdar eftir hópárásir á 13 ára stúlku – Börn ítrekað niðurlægð og upptökum dreift
Tvær stúlkur af sómölskum uppruna hafa verið dæmdar eftir að 13 ára stúlka var barin tvisvar sama dag í Osló. Árásirnar voru teknar upp og upptökunum ...
Á spítala eftir mis­heppnaða af­töku - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Á spítala eftir mis­heppnaða af­töku - Vísir
Christa Pike var átján ára þegar hún, ásamt kærasta sínum, misþyrmdi og drap hina 19 ára Colleen Slemmer árið 1995. Hún hefur setið í fangelsi síðan o...
Dame Esther Rantzen: Tributes paid to 'inspirational' presenter and charity founder
📅 01.10.2026 👁️ 1
Dame Esther Rantzen: Tributes paid to 'inspirational' presenter and charity founder
Dame Esther Rantzen was "an inspirational individual", the director of her Childline helpline says.
Dame Esther Rantzen: Tributes paid to 'inspirational' presenter and Childline founder
📅 01.10.2026 👁️ 0
Dame Esther Rantzen: Tributes paid to 'inspirational' presenter and Childline founder
Dame Esther Rantzen was "an inspirational individual", the director of her Childline helpline says.
TUI: Strong winter ahead for the Canary Islands
📅 01.10.2026 👁️ 3
TUI: Strong winter ahead for the Canary Islands
The Canary Islands will account for almost half of TUI's airline capacity to its main winter-sun destinations this coming season. The travel giant has...
Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 2
Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi - Vísir
Dagur aldraðra er haldinn í dag. Er um að ræða framtak á vegum Sameinuðu þjóðanna. Deginum er ætlað að bæta stöðu eldra fólks. Ólíklegt er þó að ræður...
Þorsteinn Pálsson skrifar: Vísitöludansinn hefur aldrei leyst verðbólguvandann
📅 01.10.2026 👁️ 2
Þorsteinn Pálsson skrifar: Vísitöludansinn hefur aldrei leyst verðbólguvandann
Mynd Atvinnulífið og verkalýðsfélögin hafa enn á ný myndað ábyrg
Hryllingur á dauðadeild þegar yfirvöldum mistókst í tvígang að taka Christu Pike af lífi
📅 01.10.2026 👁️ 2
Hryllingur á dauðadeild þegar yfirvöldum mistókst í tvígang að taka Christu Pike af lífi
Hin fimmtudaga Christa Pike, sem dæmd var til dauða fyrir hrottalegt morð á unglingsstúlku árið 1995, er á sjúkrahúsi eftir að aftaka hennar í Tenness...
Þúsundir heimavarnarliða í fjölmennustu æfingu frá lokum kalda stríðsins
📅 01.10.2026 👁️ 2
Þúsundir heimavarnarliða í fjölmennustu æfingu frá lokum kalda stríðsins
Þúsundir sjálfboðaliða í heimavarnarliði Danmerkur taka þessa dagana þátt í einhverri umfangsmestu æfingu sem haldin hefur verið frá lokum kalda stríð...
Réttindalaus ökumaður ók glæfralega um vesturborgina
📅 01.10.2026 👁️ 3
Réttindalaus ökumaður ók glæfralega um vesturborgina
Lögreglumenn eltu uppi og stöðvuðu bílstjóra sem ók glæfralega um vesturhluta Reykjavíkur í gærkvöld og í nótt.Ökumaðurinn reyndist réttindalaus og má...
69-year-old surfer seriously injured in Fuerteventura is airlifted to Gran Canaria
📅 01.10.2026 👁️ 2
69-year-old surfer seriously injured in Fuerteventura is airlifted to Gran Canaria
A 69-year-old surfer has been seriously injured while surfing at Playa del Águila, near El Cotillo in Fuerteventura. The accident happened at around 1...
Bíl ekið á ljósa­staur - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 2
Bíl ekið á ljósa­staur - Vísir
Í dagbók er annars fjallað um nokkurn fjölda ökumanna sem lögreglan hafði afskipti af víða um höfuðborgarsvæðið vegna þess að þeir óku undir áhrifum á...
What we know after Christa Pike survived two lethal injections
📅 01.10.2026 👁️ 3
What we know after Christa Pike survived two lethal injections
Her legal team filed an emergency motion to halt the convicted murderer's execution as it was happening.
Alexander Skarsgård: „Ég hef saknað Íslands“
📅 01.10.2026 👁️ 3
Alexander Skarsgård: „Ég hef saknað Íslands“
Alexander Skarsgård segist verða að leggja reglulega frá sér símann og fara út í náttúruna. Það sé nauðsynlegt mótvægi við umstangið sem fylgir kvikmy...
Nadine og Þór­hildur byrja með nýtt hlaðvarp - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 2
Nadine og Þór­hildur byrja með nýtt hlaðvarp - Vísir
Hlaðvarpsþættirnir Eftirmál komu fyrst út í mars árið 2022 og er eitt allra vinsælasta hlaðvarp landsins með tugþúsundir hlustana á hvern þátt. Hlusta...
THURSDAY WEATHER: A cooler day with showers forecast across parts of the Canary Islands
📅 01.10.2026 👁️ 2
THURSDAY WEATHER: A cooler day with showers forecast across parts of the Canary Islands
The Canary Islands will experience a cooler and more unsettled day today, Thursday, as the remnants of an Atlantic front move across parts of the arch...
Fimmtug kona lifði af tvær aftökutilraunir í Tennessee
📅 01.10.2026 👁️ 2
Fimmtug kona lifði af tvær aftökutilraunir í Tennessee
Fimmtug bandarísk kona á dauðadeild fangelsis í Tennessee lifði af tvær aftökutilraunir í gærkvöld. Alríkisdómstóll fyrirskipaði að aftökunni skyldi f...
Kínverskum hótelgestum fjölgaði hlutfallslega í ágúst — gistinóttum fækkaði svolítið
📅 01.10.2026 👁️ 3
Kínverskum hótelgestum fjölgaði hlutfallslega í ágúst — gistinóttum fækkaði svolítið
Gistinóttum á íslenskum hótelum fækkaði um 2,5 af hundraði í ágúst samanborið við sama tíma í fyrra.Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferð...
AI boom could trigger market shocks, Bank of England boss warns
📅 01.10.2026 👁️ 3
AI boom could trigger market shocks, Bank of England boss warns
Andrew Bailey says the central bank is watching the waves of cash being invested in artificial intelligence "very carefully".
Musk leikur stórt hlutverk í nýrri áætlun um framtíð hernaðar
📅 01.10.2026 👁️ 3
Musk leikur stórt hlutverk í nýrri áætlun um framtíð hernaðar
Auðkýfingnum Elon Musk er ætlað stórt hlutverk í nýrri áætlun um framtíðarhernað á vegum bandaríska varnarmálaráðuneytisins.Ráðherrann Pete Hegseth ti...
Plummeting Israel flight like 'rollercoaster', says passenger
📅 01.10.2026 👁️ 2
Plummeting Israel flight like 'rollercoaster', says passenger
An aeroplane flying to Israel fell 17,000ft (5,200m) in less than two minutes before it was diverted.
Fimmta dauðsfallið í versta mislingafaraldri síðustu áratuga
📅 01.10.2026 👁️ 3
Fimmta dauðsfallið í versta mislingafaraldri síðustu áratuga
Heilbrigðisyfirvöld í Lancaster-sýslu í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum staðfestu í gær fimmta andlátið þar í landi tengt mislingum. Alls hafa verið skrá...
Svissneskir jöklar skroppið saman um 20% á fimm árum
📅 01.10.2026 👁️ 3
Svissneskir jöklar skroppið saman um 20% á fimm árum
Á aðeins fimm árum hafa svissneskir jöklar skroppið saman um næstum því tuttugu prósent. Til samanburðar má benda á að jöklarnir minnkuðu um tíu próse...
Trump segir flugmanninn annaðhvort brjálaðan eða hryðjuverkamann
📅 01.10.2026 👁️ 3
Trump segir flugmanninn annaðhvort brjálaðan eða hryðjuverkamann
Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst hafa rætt tilræði um borð í farþegaþotu FlyDubai í hörgul við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Fles...
BBC paying to air shows like Suits and Schitt's Creek is illogical, MPs say
📅 01.10.2026 👁️ 3
BBC paying to air shows like Suits and Schitt's Creek is illogical, MPs say
The issue is one of several raised by an influential committee as debate about the BBC's future continues.
Celebrity Traitors: What you need to know ahead of the first show
📅 01.10.2026 👁️ 4
Celebrity Traitors: What you need to know ahead of the first show
Maya Jama, Michael Sheen and Bella Ramsey are among this year's celebrities taking part in the show.
Söknuðu nær­gætni og um­hyggju eftir háska á Ibiza - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 3
Söknuðu nær­gætni og um­hyggju eftir háska á Ibiza - Vísir
Þetta segja Nína Dögg Hilmarsdóttir, Natalía Nótt Helgadóttir, Matthildur Bolladóttir og Nadía Hólm Elísdóttir sem allar voru um borð í bátnum en þær ...
Swiss glaciers suffer 'disastrous' year of ice loss
📅 01.10.2026 👁️ 3
Swiss glaciers suffer 'disastrous' year of ice loss
Scientists say such rapid melting is no longer surprising given the pace of climate change.
China has cracked down on AI relationships. Is it ahead of the game?
📅 30.09.2026 👁️ 4
China has cracked down on AI relationships. Is it ahead of the game?
Beijing has cracked down on AI chatbots that can replicate human relationships. Experts are asking if this is the right thing to do.
US Supreme Court allows execution of Christa Pike to go ahead
📅 30.09.2026 👁️ 3
US Supreme Court allows execution of Christa Pike to go ahead
The death by lethal injection was scheduled to happen earlier on Wednesday before a lower court paused the execution.
Tennessee death row inmate Christa Pike taken to hospital after attempted execution, lawyer says
📅 30.09.2026 👁️ 3
Tennessee death row inmate Christa Pike taken to hospital after attempted execution, lawyer says
One of her attorneys told the BBC that Pike, 50, was in hospital after two syringes of pentobarbital had been administered.
Tennessee death row inmate Christa Pike survives execution attempt after two injections
📅 30.09.2026 👁️ 3
Tennessee death row inmate Christa Pike survives execution attempt after two injections
Killer Christa Pike's lawyer says she is being given "life-saving measures" in hospital after two syringes of pentobarbital.
Tiny image sparks big backlash in Nikon photo contest
📅 30.09.2026 👁️ 3
Tiny image sparks big backlash in Nikon photo contest
Dr Ning Xu denies he broke the rules of Nikon's annual Small World In Motion contest.
Vape tax comes into force with prices set to rise
📅 30.09.2026 👁️ 3
Vape tax comes into force with prices set to rise
Vaping is about to becoming more expensive due to a new tax on products.
Sjö drepin í skotárás í Sýrlandi
📅 30.09.2026 👁️ 3
Sjö drepin í skotárás í Sýrlandi
Sjö voru drepin og fjögur særðust í skotárás á rútu í Homs-héraði í Sýrlandi í dag. Þetta segir fréttastofan Sana, sem er á vegum sýrlenska ríkisins. ...
Conservatives pledge 'tough love' benefit rules for under-25s
📅 30.09.2026 👁️ 3
Conservatives pledge 'tough love' benefit rules for under-25s
The party says it would bring in new work requirements for young people claiming Universal Credit.
Sakar Bretakonung um gaslýsingu og lýsir með einu orði hvernig líf Díönu hefði orðið án hjónabandsins
📅 30.09.2026 👁️ 3
Sakar Bretakonung um gaslýsingu og lýsir með einu orði hvernig líf Díönu hefði orðið án hjónabandsins
Jarlinn Charles Spencer er búinn að setja allt á hliðina í Bretlandi með bók sem hann hefur ritað um systur sína, Díönu prinsessu. Ekki nóg með að haf...
„Ég er bara ó­trú­lega leiður yfir þessu“ - Vísir
📅 30.09.2026 👁️ 3
„Ég er bara ó­trú­lega leiður yfir þessu“ - Vísir
Mbl.is greindi fyrst frá og hefur eftir Helgu Soffíu Konráðsdóttur, sóknarpresti í Háteigskirkju, að um barsmíðar hafi verið að ræða og atvikið sé „gr...
Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á á­ætlun og verði búin í lok októ­ber - Vísir
📅 30.09.2026 👁️ 3
Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á á­ætlun og verði búin í lok októ­ber - Vísir
„Maður skilur auðvitað fólkið vel sem býr þarna í kring að það er ekkert spennandi að hafa þetta í kringum sig,“ segir Magnús Hjálmarsson hjá Borgarvi...
Employers should teach primary-age children about work, Milburn says
📅 30.09.2026 👁️ 3
Employers should teach primary-age children about work, Milburn says
The author of a major report into youth activity in the UK says children as young as four should be learning about careers.
Samstaða hjá starfsfólki um að halda starfinu áfram
📅 30.09.2026 👁️ 3
Samstaða hjá starfsfólki um að halda starfinu áfram
Það er fullur vilji allra sem koma að starfi Fimleikafélagsins Bjarkar sem og Hafnarfjarðarbæjar að halda starfi félagsins áfram, telur Hilmar Ingimun...
Eld­gos á­fram lík­legasta sviðs­myndin en ó­ljóst hve­nær það yrði - Vísir
📅 30.09.2026 👁️ 3
Eld­gos á­fram lík­legasta sviðs­myndin en ó­ljóst hve­nær það yrði - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram á vef Veðurstofu Íslands um stöðuna á Reykjanesskaga . Þar segir að landris haldi hægt og rólega áfram við Svartsen...
Rifjar upp hugljúfa minningu í tilefni dagsins: „Eftir það vissi ég að þetta yrði allt í lagi hjá okkur“
📅 30.09.2026 👁️ 3
Rifjar upp hugljúfa minningu í tilefni dagsins: „Eftir það vissi ég að þetta yrði allt í lagi hjá okkur“
Sjónvarpsútsendingar Ríkisútvarpsins hófust þann 30. september árið 1966 og fagna því 60 ára afmæli í dag. Til að byrja með var aðeins sent út tvo dag...