Strætisvagn og fólksbíll lentu saman í beygju á Hafnarbraut á Kársnesi í Kópavogi fyrir skömmu.
Af myndum að dæma virðast báðar bifreiðarnar illa farnar.
Þetta staðfestir Slökkviliðið við mbl.is.
Að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru tveir sjúkrabílar og einn dælubíll sendir á vettvang.
Minniháttar áverkar eru á ökumanni bifreiðarinnar, ef þeir eru einhverjir, að sögn varðstjórans. Engir farþegar voru í strætisvagninum og er ökumaður hans óslasaður.
Var strætisvagninn færður svo hægt væri að ná ökumanni bifreiðarinnar út.

