Stórir borgarísjakar norðan og vestan af landinu sáust í ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar í gær. Einn jakanna, sem er norðvestan við Húnaflóa, er tæplega 400 metra hár og um 200 metra langur. Ísjakarnir eru nær landi en gengur og gerist.
Marcel de Vries, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir erfitt að segja til um hve margir ísjakarnir séu. Veðurstofan fylgist með ísjökunum með gervitunglum sem gefi ekki nógu góða mynd til að áætla fjölda.
„En við fengum miklar og góðar upplýsingar frá Landhelgisgæslunni um staðsetningar. Þeir eru á víð og dreif norðan og vestan af landinu,“ segir Marcel. Í kringum stóru borgarísjakana eru smærri molar af ís.
Marcel segist ekki oft hafa séð svo stóra ísjaka svona nálægt landinu en þetta sé farið að gerast í auknum mæli. „Við erum að sjá þetta oftar síðustu ár að það eru stórir ísjakar í kringum landið.“
Það er þó ekki óeðlilegt að borgarís sé í kringum landið á þessum tíma árs.
„Ég held að þetta sé svona venjulegt fyrir árstímann að vera með ísjaka í kringum Ísland. Hafís er að brotna upp í sumarleysingum á milli Íslands og Grænlands og þá er háð vindátt hvert ísjakana rekur. Nú er góður tími fyrir þá að koma til okkar,“ segir Marcel.
„Þeir eru líka að bráðna frekar fljótt af því að það er hlýtt í kringum landið.“
Auka þessir ísjakar líkurnar á að ísbirnir komi upp á land?
„Stundum sér maður að það sé ísbjörn á þessu en það er mjög sjaldan. En það er ekki útilokað.“