Útlit er fyrir golu eða kalda og skýjað með köflum og stöku skúrir í dag – þeim mun fleiri skúrir eftir því sem líður á daginn. Á morgun verður hæglætisveður og bjartara veður en áfram eitthvað um skúrir sunnanlands.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Austan fimm til tíu við suðvesturströndina, en annars hægari. Skýjað með köflum og stöku skúrir. Norðaustlæg átt þrír til tíu síðdegis og skúrir á víð og dreif. Hiti 7 til 13 stig að deginum.
Norðan fimm til tíu austast á morgun, en annars hæg breytileg átt. Víða bjart, en síðdegisskúrir sunnanlands. Heldur kólnandi austanlands, en annars svipaður hiti.