„Hún gekk í gegnum hreinasta helvíti,“ segir Katrín Auðbjörg Aðalsteinsdóttir sem hefur stofnað stuðningshóp fyrir aðstandendur ungmenna sem eru fórnarlömb alþjóðlega glæpahópsins 764. Dóttir Katrínar er ein þeirra.
Katrín segir erfitt að finna fórnarlömb hópsins.
„Markmiðið mitt er að vekja athygli á þessu ofbeldi sem tíðkast þarna á netinu og finna hvort það séu fleiri fórnarlömb hérna á Íslandi. Þannig að við getum hjálpað líka með jafningjastuðningi,“ segir Katrín.
Hún segist ekki hafa fengið mikil viðbrögð við hópnum, þó að nokkrir sem hafi ekki tengingar við fórnarlömb hafi óskað eftir því að fá inngöngu í hópinn. „Það er þá meira fólk sem vill forvitnast út á hvað þetta gengur,“ segir Katrín. Þær séu tvær sem eigi börn sem séu þekkt fórnarlömb á Íslandi.
„Í draumaheimi fáum við engin viðbrögð og þá eru ekki fleiri fórnarlömb, en við vitum að það leynast fleiri einhvers staðar þarna úti,“ segir hún.
Henni finnst ekki margt hafa breyst síðan upp komst um hópinn hér á landi. Ef eitthvað hafi umsvif hópsins aukist.
„Þau eru snillingar í að fela þetta“
Katrín segir erfitt fyrir foreldra að sjá hvort börnin sín séu að lenda í ofbeldi af þessu tagi á netinu. „Þau eru snillingar í að fela þetta. Gerendur í þessum hópi, þeir í rauninni heilaþvo krakkana og gera það að verkum að þau hætta að treysta foreldrum sínum, hætta að treysta fjölskyldu sinni og loka sig af inni í herbergi.“
Hegðunarbreyting sé það helsta sem bendi til þess að barn sé að verða fyrir þessu ofbeldi. Þau loki sig af, verði uppstökk og sum börn skaði sig, skeri jafnvel nafn geranda á líkama sinn.
„Leitið til lögreglunnar. Ekki gefast upp,“ segir Katrín við foreldra í sömu stöðu og hún. Hún biðlar til foreldra að fylgjast vel með netnotkun barna sinna. „Til dæmis Roblox, það er stór vettvangur fyrir þessa gerendur. Þar lokka þeir barnið í spjall, þykjast vera vinir þess,“ segir hún. Þegar gerendur hafi náð trausti barnsins þá biðji þeir það að skaða sjálft sig eða aðra eða senda sér kynferðislegar myndir.
Þegar börnin hennar gerðu verkefni í skólanum um netnotkun kom Katrínu á óvart hversu fáir foreldrar væru með foreldrastýringu eða eftirlit á símum barna sinna. „Þannig að krakkarnir gátu verið að gera allt án þess að foreldrarnir sæju það.“