Sömuleiðis einkenndist liðin vika af ýmsum tímamótum hjá stjörnum landsins samhliða því að brátt líður sumarið undir lok og þó það sé oft erfitt að sleppa tökum á því bíður ný árstíð spennt eftir því að gleðja okkur með sinni einstöku litadýrð og huggulegheitum.
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Afmælisdrottning með magapest
Áhrifavaldurinn og tískudrottningin Móeiður Lárusdóttir fagnaði afmæli sínu á Grikklandi um helgina þar sem hún er búsett. Dagurinn byrjaði mjög vel en endaði því miður með óvæntri ælupest.
Mega stuð í maraþoni
Vinkonurnar Sædís Lea, pílates pæja og starfsmaður á fjármálasviði LSR, og Elma Rún, starfsmaður KPMG, skelltu sér saman í Reykjavíkurmaraþonið.
Leikarinn Tómas Howser tók tíu kílómetra á rosalegum hraða, 36 mínútum og 35 sekúndum og var í þriðja sæti í sínum aldursflokki.
TikTok stjarnan Embla Wigum hafði engan áhuga á íþróttum í grunnskóla en hljóp heilt maraþon á laugardag á fínasta tíma.
Menningarnótt með fyrrverandi
Fjölmiðlamaðurinn Stefán Einar hljóp í Reykjavíkurmaraþoninu og eyddi svo Menningarnótt með fyrrverandi eiginkonu sinni Söru Lind.
Ekki stefnulaus
Árni Páll Árnason eða Herra Hnetusmjör hellir sér í verkefni og klæðir sig upp með stæl.
Vilja ekki sleppa sumrinu
Athafnakonan Sofia Elsie Nielsen vill helst hafa endalaust sumar. Hún rokkaði glæsilegan sumarklæðnað um helgina og er alltaf smart til fara.
Skálar fyrir bestu
Útvarpskonan og áhrifavaldurinn Jóhanna Helga Jensdóttir skálaði fyrir bestu vinkonu sinni Sunnevu Einarsdóttur í tilefni af afmæli hennar.
Skvísudjamm
Áhrifavaldurinn Rósa Kristinsdóttir skellti sér í alvöru skvísuafmæli hjá Söru Dís.
Bíða eftir barni
Áhrifavaldaparið Ástrós Traustadóttir og Adam Helgason bíða spennt eftir barni og fóru í skemmtilega myndatöku.
Upplifði Ibiza drauminn
Plötusnúðurinn Anna Ármann átti draumadaga á sólríku stuð-eyjunni Ibiza.
Golf-fjör
Bakarinn og áhrifavaldurinn Linda Ben fór í fjölskyldugolfferð til Norður-Karólínu og var mætt út á völl fyrir klukkan átta alla daga.
Og ofurpörin Dísa og Bjössi í World Class og Inga Lind og Sigurður Viðars skelltu sér í golf. Sigurður fór á erni!
Gellustælar
Áhrifavaldurinn Arnar Máni var með alvöru gellustæla á gramminu.
Óveðurs-pæja
Húðdrottningin Helga Sigrún Hermannsdóttir fór í skvísumyndatöku í óveðri á Ítalíu.
Bleikt sumar
Tónlistarkonan og tískuskvísan Karin Arnhildardóttir átti bleikt sumar.
Menningargella
Instagram pæjan Christel Ýr skellti sér út á lífið á Menningarnótt.