Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur kynnt í samráðsgátt stjórnvalda áform um ýmsar breytingar á lögum um kílómetragjald. Meðal þeirra er að veita ríkisskattstjóra auknar heimildir til að lækka gjaldið sé álagning þess augljóslega byggð á röngum forsendum eða upphæð þess greinilega hærri en hún ætti að vera.
Stefnt að ýmsum breytingum á kílómetragjaldinu - Ríkisskattstjóri fær auknar lækkunarheimildir