Stækkunarstjóri Evrópusambandsins, Marta Kos, segir í samtali við fréttastofu Sýnar að engin aðlögun íslenskra laga að regluverki sambandsins muni eiga sér stað á meðan á aðildarviðræðum stæði, færi svo að þjóðin segi já í næstu viku.Jafnframt segir Marta að Evrópusambandið sé meðvitað um stöðu Íslands hvað varðar málefni sjávarútvegs og landbúnaðar. Hún telur fært að finna skapandi lausnir í viðræðum sem muni bæði henta Íslandi og ESB.
Stækkunarstjóri Evrópusambandsins: Engin aðlögun muni eiga sér stað í viðræðunum