Um 400 sprengjur og skotfæri frá síðari heimsstyrjöld komu í ljós eftir mikla skógarelda í Le Porge, vestur af Bordeaux í Frakklandi á dögunum.
Þegar skógareldarnir geisuðu heyrðust sprengingar sem margir töldu vera gassprengingar í eldunum. Slökkviliðsstjórinn á svæðinu Thomas Mimiague segir að sprengingarnar gætu hafa verið ósprungnar sprengjur og skotfæri. Skotfærin voru bæði þýsk og frönsk og voru einkum sprengjuvörpur. Mimiague segist þó ekki vita af hverju skotfærin voru á svæðinu en líklega hafi þau verið skilin þar eftir.
Íbúar í Le Porge fengu að snúa aftur heim til sín í dag þegar búið var að hreinsa svæðið af sprengjum og skotfærum.
Skógareldarnir í Gironde-héraði eru mestu skógareldar í héraðinu síðan 1949 en um 40.000 hektarar lands brunnu á tíu dögum. Le Monde segir að tæplega 200 hús hafi brunnið í Le Porge.