Sýrlenskir ríkisfjölmiðlar segja að tvær sprengjur hafi sprungið í miðborg höfuðborgarinnar. Þær eru sagðar hafa sprungið nærri Four Seasons-hótelinu þar sem Macron dvelur í heimsókn sinni.
Myndir sem deilt var á samfélagsmiðlum sýna brennandi bifreið og blóðbletti á götunni, að sögn AP-fréttastofunnar.
Macron var kominn inn í forsetahöllina í Damaskus til fundar við Ahmad al-Sharaa, forseta Sýrlands, þegar sprengjan sprakk. Embætti Frakklandsforseta segir að hann sé óhultur og að heimsókn hans haldi áfram.
Að minnsta kosti tíu létust og tuttugu særðust þegar sprengja sprakk á kaffihúsi í Damaskus fyrir örfáum dögum.