Rétt fyrir klukkan hálf ellefu í morgun, þegar forsetahjónin voru að koma á forsetabílnum Landveginn í Rangárþingi ytra, varð sprenging í malarnámu rétt við veginn, sem kallast Nónhamarinn, og þeyttist grjót út um allt og mikið ryk myndaðist.
„Það er aldeilis tekið vel á móti manni með sprengingu hér í sveitinni,“ sagði Halla þegar hún steig út úr bílnum.
Frú Halla og Björn byrjuðu á að heimsækja leikskólann, sem á 30 ára afmæli í dag. Börnin sungu nokkur lög og spurðu forsetann margra spurninga sem svarað var greiðlega. Yngstu krakkarnir gáfu líka Höllu blóm. Svo var farið út að gróðursetja hindberjaplöntur með elstu leikskólakrökkunum og gekk það vel.
„Það er náttúrlega svo fallegt veðrið og svo held ég að ég hafi ekki fengið fallegra heimboð frá því að ég tók við embætti en börnin hérna bjuggu til síðasta haust til Hölluklúta og sendu mér eitt fallegasta bréf sem ég hef fengið, mynd af sér með klútana og buðu mér í 30 ára afmæli leikskólans,” segir Halla.
Er ekki frábært að hitta leikskólabörn?
„Það er ekkert sem gefur manni meira”.
Svo fenguð þið sprengiregn þegar þið komuð?
„Já, við vissum ekki hvort það væri flugeldasýning en það var hér verið að sprengja þegar við komum og þurfti að sparka grjóti af veginum til að komast hingað í hlaðið í morgun,” segir Halla.
Grunnskólinn á Laugalandi var líka skoðaður en þar fór Björn meðal annars í skemmtilegan fótboltaborðtennis með krökkunum. Krakkarnir sungu líka fyrir forsetahjónin áður en boðið var upp á lambasteik með öllu tilheyrandi.
Forsetahjónin komu líka við á Hellum á Hellu en það fyrsta sem þau gerðu þegar þau komu var að skrifa í gestabókina, sem er hús á staðnum. Um 15 þúsund ferðamenn koma í Hellana á Hellu árlega. Eftir heimsóknina þangað fóru forsetahjónin í heimsókn á dvalarheimilið Lund á Hellu.