Er þetta meðal þess sem var skráð í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þessa mjög svo annasömu nótt en fangageymslur voru fullar og rúmlega það, er fram kemur í dagbók lögreglu. Þá hafi verið „töluvert af slagsmálum, almennum ófriði og veseni“.
Slagsmál á skemmtistað
Mest mæddi á lögreglustöð 1 en varðsvæði hennar dekkar meðal annars miðborg Reykjavíkur. Það voru að minnsta kosti þrjú tilvik þar sem fólk var fært á lögreglustöðina á Hverfisgötu vegna frávika í hegðun gagnvart starfsfólki skemmtistaðar. Einnig var útkall þar sem menn höfðu ákveðið að láta hnefana tala á skemmtistað í hverfi 101.
Ein sparkaði í lögreglubíl og var færð á stöðina en látin laus eftir skýrslu. Ekki kemur fram hvernig málsatvik voru áður en hún sparkaði í bílinn. Þá er skráð eitt mál í kerfinu þar sem aðili tók sig til og hrækti í andlit sjúkraflutningamanna en það stendur ekkert um það hvort sá hafi verið færður á stöð.
Fjöldi ökumanna var stöðvaður og þá voru nokkur skipti þar sem ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- eða fíkniefna. Einnig voru dæmi um að ökumenn keyrðu um án réttinda.
Hundi bjargað af svölunum
Þrír voru vistaðir í fangaklefa vegna rannsóknar á ráni og meiriháttar líkamsárás í umdæmi stöðvar eitt sem nær yfir Vesturbæ, Miðborg, Hlíðarnar, Laugardal, Háaleiti og Seltjarnarnes. Einn var vistaður vegna rannsóknar á líkamsárás í umdæmi stöðvar 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ.
Sjá einnig: Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir
Tvö umferðarslys áttu sér stað á tímabilinu í Grafarvogi, Árbæ eða Mosfellsbæ. Þá kom upp eldur í fjölbýlishúsi í Norðlingaholti en var einn fluttur á slysadeild og hundi bjargað af svölum íbúðarinnar.