Spjallið með Frosta Logasyni
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris og maðurinn á bak við CCP og EVE Online, studdi áður inngöngu Íslands í ESB og upptöku evru. Nú hefur honum snúist hugur og ætlar að greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum.
Í þessu ítarlega viðtali útskýrir Hilmar hvað varð til þess að hann skipti um skoðun. Hann ræðir reynslu sína af Brexit, hnignandi samkeppnishæfni Evrópu, sívaxandi regluverk ESB og hvers vegna hann telur EES-samninginn þjóna íslenskum hagsmunum betur en full aðild.
Hilmar segir að tekist hafi að skapa mun traustari grundvöll undir íslensku krónuna en flestir áttu von á. Hugverkaiðnaðurinn sé orðinn stærri en sjávarútvegurinn og geti orðið stærsta útflutningsstoð Íslands árið 2030. Í stað þess að verja næstu árum í aðildarviðræður eigi stjórnvöld að beina athyglinni að verðbólgu, vöxtum, menntakerfinu, nýsköpun og áframhaldandi uppbyggingu íslenskra útflutningsgreina.
Einnig er rætt um uppbyggingu CCP, ævintýrið í kringum EVE Online, nýja leiki fyrirtækisins, reynslu Hilmars af Kína og þau gríðarlegu viðskiptatækifæri sem hann sér utan Evrópu.
Í lok viðtalsins lýsir Hilmar einstöku samstarfi Fenris og Google DeepMind. Þar er heimur EVE notaður sem eins konar sandkassi til að rannsaka hegðun sjálfstæðra gervigreindarerindreka og kanna hvort þeir starfi með mannkyninu – eða fari sínar eigin leiðir.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/