Spjallið með Frosta Logasyni
Í þessu viðtali segir Hrafn Margeirsson frá erfiðustu reynslu lífs síns: missi 21 árs dóttur sinnar sem lést úr mjög ágengu ristilkrabbameini árið 2024.
Hrafn er sannfærður um að veikindi dóttur sinnar tengist Covid-bólusetningum sem hún fékk árið 2021. Hann rekur þá atburðarás sem varð til þess að hann skipti um skoðun á bólusetningunum, segir frá leit sinni að svörum eftir andlát dótturinnar og gagnrýnir harðlega íslensk heilbrigðisyfirvöld, fjölmiðla og lyfjafyrirtæki.
Meðal þess sem rætt er:
• Saga 21 árs dóttur Hrafns og veikindi hennar
• Hvað svokallað „túrbókrabbamein“ er að mati þeirra sem nota hugtakið
• Aukaverkanir Covid-bólusetninga og skráningar þeirra
• Umræða um sprautuskaða á Íslandi
• Gagnrýni á heilbrigðisyfirvöld og fjölmiðla
• Hvers vegna Hrafn telur að mikilvægar spurningar hafi ekki verið rannsakaðar
Athugið: Viðmælandinn lýsir hér eigin skoðunum, reynslu og túlkun á atburðum.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift