Forstjóri tæknirisa sem framleiðir örflögur fyrir gervigreindariðnað hafði betur þegar dómstóll lækkaði greiðslur til eiginkonu hans um tvo þriðju í því sem suðurkóreskir fjölmiðlar hafa nefnt skilnað aldarinnar.
Chey Tae-won og Roh Soh-yeong virtust lengi vera fyrirmyndarhjón í suðurkóresku viðskiptalífi með hundruð milljarða umleikis og í áberandi stöðum, hann forstjóri stórfyrirtækis sem framleiðir örflögur fyrir gervigreindariðnað, hún dóttir fyrrverandi forseta landsins.
Þau giftust 1988 en síðasti rúmlega áratuginn hefur samskiptum þeirra að miklu leyti verið varið frammi fyrir dómstólum þar sem þau deila um hvernig skipta eigi eignum við skilnað, enda er mikið í húfi. Hlutabréf Cheys í örflöguframleiðandanum SK hynix eru metin á fimm og hálfan milljarð bandaríkjadala, andvirði 700 milljarða króna. Verðmæti þeirra hefur þrefaldast síðan hann játaði á sig framhjáhald fyrir rúmlega áratug. Síðan þá hafa hjónin ekki búið saman.
Suðurkóreskir dómstólar dæmdu Roh upphaflega andvirði 118 milljarða króna. Þar var meðal annars tekið tillit til þess að mútusjóður föður hennar hefði verið notaður til að greiða götu fyrirtækisins í upphafi. Þetta taldi dómstóllinn að ætti að meta sem framlag hennar til bús fjölskyldunnar.
Því hafnaði Hæstiréttur sem sagði að fólk gæti ekki talið sér mútufé til tekna í dómsmáli því það væri ávinningur af ólöglegri starfsemi. Nýjasti dómurinn kveður á um að Roh fái 81 milljarð í sinn hlut en viðbúið er að málið fari aftur fyrir hæstarétt áður en öllu er lokið.