Spánverjar hafa frá miðnætti krafið ítalska ferðamenn um vegabréf á landamærunum. Sú ráðstöfun gildir til 7. september.
Innanríkisráðuneytið segir með því brugðist við sams konar aðgerðum ítalskra stjórnvalda vegna flótta tugþúsunda farandfólks frá Marokkó til spænsku hólmlendunnar Ceuta. Ítalir slitu 1. ágúst tímabundið Schengen-samstarfinu við Spán um frjálsa för íbúa ríkja Evrópusambandsins.
Atburðurinn í Ceuta vakti spurningar um landamæraöryggi innan Evrópu og Spánverjar lágu undir þungu ámæli vegna viðbragða sinna. Næstum allir sem fóru yfir landamærin hafa snúið aftur til Marokkó. Talið er að um 80 manns hafi látið lífið.
Spænska ríkisstjórnin sagði viðbrögð Ítala ósanngjörn og óréttlát gagnvart spænskum ríkisborgurum ásamt því að vera í hrópandi andstöðu við hagsmuni Evrópusambandsins. Utanríkisráðherrann Jose Manuel Albares lýsti viðbrögðum Ítala sem tundurskeytaárás á einingu Evrópuríkja.
Ítalski forsætisráðherrann Giorgia Meloni segir ákvörðunina ekki verða endurskoðaða fyrr en 15. ágúst.
Óstaðfestur orðrómur hefur verið uppi á samfélagsmiðlum um að hópur farandfólks muni koma til Ceuta fyrir miðjan mánuð. Ítalir hlíti ekki afarkostum annarra ríkja varðandi eigið öryggi og landamæraeftirlit. Hins vegar yrði allt gert til að auðvelda för Spánverja og annarra Evrópumanna.