Spánverjar synda gegn brottvísunarstraumnum og bjóða ólöglegum innflytjendum dvalarleyfi
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

Spánverjar synda gegn brottvísunarstraumnum og bjóða ólöglegum innflytjendum dvalarleyfi

Spánverjar synda gegn brottvísunarstraumnum og bjóða ólöglegum innflytjendum dvalarleyfi

Á sama tíma og mörg - jafnvel flest - Evrópuríki herða aðgerðir til að hindra komu flóttafólks og ólöglegra innflytjenda og einfalda og flýta brottvísun þeirra sem þegar eru komin fara stjórnvöld á Spáni í hina áttina og veita um hálfri milljón manns sem dvelja og vinna í landinu án tilskilinna leyfa tímabundið - en endurnýjanlegt - dvalarleyfi.

Hlusta má á umfjöllun Spegilsins um þetta í spilaranum hér að neðan, eða lesa hana áfram þar fyrir neðan.

Nýir tímar í Ungverjalandi - nema fyrir flóttafólk og innflytjendur

Ungverjar kusu sér nýtt þing og þar með nýja ríkisstjórn með nýjum forsætisráðherra á dögunum. Úrslitum þingkosninganna hefur víða verið fagnað, einkum í Evrópusambandinu.

Sagt er að það marki þáttaskil, að í stað öfga-hægrimannsins Viktors Orbáns sé kominn annar og lýðræðisvænni maður í brúna, tilbúinn að moka út úr spillingarfjósi Orbáns, leysa fjölmiðla, menntastofnanir og listamenn úr hlekkjum ritskoðunar, dómstóla undan pólitískri misbeitingu, og færa samskiptin við Evrópusambandið og aðildarríki þess í fyrra horf.

Það er engin ástæða til að efast um að stórsigur Péters Magyar, fyrrverandi samherja Orbáns, í ungversku þingkosningunum, marki upphaf róttækra breytinga - jafnvel umbóta - í ungverskum stjórnmálum, hverjar sem þær kunna að verða. Eitt mun þó ekki breytast - í það minnsta ekki í þá átt sem einhver hefðu kannski haldið - og það er stefna ungverskra stjórnvalda í málefnum flóttafólks, hælisleitenda og ólöglegra innflytjenda.

Evrópa lokar landamærunum en Spánverjar opna faðminn

Stjórn Orbáns rak afar harða stefnu í þessum málaflokki, sem miðaði að því að hleypa sem fæstum úr þessum hópum inn í landið og koma sem flestum sem þar voru út úr því aftur. Af orðum Magyars að dæma hyggst hann í engu slaka á í þessum efnum, heldur taka upp enn harðari stefnu en forveri hans, eins og fram kom í umfjöllun Spegilsins á dögunum.

Það er í fullu samræmi við þróun þessa málaflokks víðast hvar í Evrópu og reyndar Evrópusambandinu sem slíku. Líka í þeim löndum sem stjórnað er af flokkum sem gjarnan kenna sig við félags- og efnahagslegan jöfnuð, réttlæti og mannúð, svo sem Bretland, Danmörku og Ísland.

Eitt Evrópuríki sker sig þó úr, og það er Spánn. Ekki er nóg með að spænsk stjórnvöld láti það ógert að fjölga steinum í götu þeirra inn í Spán og herða sig við að bola þeim burt, heldur hyggjast þau létta þeim lífið til muna.

Yfir 500.000 ólöglegum innflytjendum býðst að verða löglegir

Samkvæmt tilskipun ríkisstjórnar sósíalistans Pedro Sanchez, sem samþykkt var í liðinni viku, býðst nefnilega rúmlega 500.000 ólöglegum innflytjendum sem þegar búa og vinna á Spáni, dvalar- og atvinnuleyfi sem gildir í eitt ár - og er endurnýjanlegt. Umsækjendur þurfa þó að uppfylla ákveðin skilyrði; sýna fram á að þeir hafi komið til landsins fyrir síðustu áramót, hafi búið þar í minnst fimm mánuði - og séu með hreint sakavottorð. Fólk, sem sótti um hæl fyrir síðustu áramót, getur líka sótt um þetta endurnýjanlega árs-dvalarleyfi.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem spænsk stjórnvöld opna landamærin fyrir fjöldaflutninga fólks til landsins, en það eru yfir tuttugu ár frá því að eitthvað þessu líkt var gert síðast. Franska fréttastofan AFP segir að rekja megi tilskipunina til áskorunar sem undirrituð var af yfir 700.000 manns og studd af hundruðum hreyfinga, félagasamtaka og stofnana, þar á meðal kaþólsku kirkjunni.

Stórt „svart“ hagkerfi mannað ólöglegum innflytjendum

Spánn hefur um áratugaskeið þurft að reiða sig á erlent vinnuafl í fjölmennustu atvinnugreinunum. Meirihluti þessa fólks er löglegur í landinu, en hundruð þúsunda eru það ekki, heldur lifa og starfa í því sem kallað er neðanjarðar- eða svarta hagkerfinu, vinnandi í ræstingum, byggingariðnaði, landbúnaði, verslunum, veitingastöðum, hótelum og heilbrigðisþjónustu svo það helsta sé nefnt.

Stór hluti þessa vinnuafls kemur frá fyrrum nýlendum Spánar í Rómönsku Ameríku og Norður-Afríku, segir í umfjöllun AFP/France 24, svo sem Venesúela, Kólumbíu, Ekvador og nágrannaríkinu Marokkó.

Og þótt við tengjum fréttir af ólöglegum innflytjendum til Spánar helst við myndskeið af fólki sem freistar þess í örvæntingu að klifra yfir gaddavírsgirðingarnar sem umlykja spænskar hólmlendur í Marokkó og sökkvandi manndrápsfley undan ströndum Kanaríeyja, segir þar, þá koma langflestir þessara "ólöglegu" innflytjenda löglega inn í landið eins og hverjir aðrir túristar, en ílendast svo. Dvelja þar lengur en vegabréfsáritunin leyfir og finna sér misilla - eða misvel - launaða vinnu á gráa svæðinu, svarta hagkerfinu, sem skilar engu í sameiginlega sjóði landsmanna.

Viðurkenning á tilvist fólks og hagkvæmt fyrir samfélagið

Sanchez segir í opnu bréfi að tilskipunin feli einfaldlega í sér viðurkenningu á tilvist fólks í landinu, „sem gegnir nú þegar sínu hlutverki í daglegu lífi [Spánverja]“ með því að sinna umönnun aldraðra, starfa í landbúnaðargeiranum og byggja upp blómleg fyrirtæki. Hann bendir á að innflytjendur FRÁ Spáni hafi löngum flykkst til annarra landa og að landinu bæri siðferðisleg skylda til þess að taka innflytjendum opnum örmum, rétt eins og aðrir hefðu tekið Spánverjum. Þetta snerist þó ekki bara um siðferði, heldur líka skynsemi og hagkvæmni.

Spánverjar, rétt eins og aðrar Evrópuþjóðir, væru að eldast, sagði hann, „og ef við tökum ekki inn nýtt fólk til að vinna og leggja sitt af mörkum til almannatryggingakerfisins, þá mun velmegun okkar minnka, getu okkar til nýsköpunar hnigna og almannaþjónustan - heilbrigðisþjónustan, lífeyriskerfið, menntunin - mun versna," skrifar forsætisráðherrann, sem benti á að innflytjendur ættu stóran þátt í styrkingu spænska efnahagskerfisins síðustu ár.

Ekki allir jafn hrifnir

Kaþólska kirkjan - sem seint mun teljast til heitra fylgjenda Sósíalistaflokksins - fagnar tilskipun stjórnarinnar, sem gefin er út í nafni konungs. Hinn íhaldssami Flokkur fólksins - sem lagði svipaða tillögu fram á spænska þinginu fyrir tveimur árum eða svo - gerir það ekki, heldur hyggst freista þess að hnekkja tilskipuninni fyrir dómstólum. Flokkurinn segir þetta ganga gegn samevrópskri samstöðu í þessum málaflokki og til þess fallið að "flytja innflytjendavandamálið út til Evrópusambandsins alls."

Og Santiago Abazcal, leiðtogi fjar-hægri þjóðernissinnaflokksins VOX, var á svipuðum nótum þegar hann hét því að láta Sanchez gjalda þess að veita innflytjendunum dvalarleyfi í stórum stíl. „Þjóðin," sagði hann, „mun ekki fyrirgefa það.“

#brottvísunarstraumnum #dvalarleyfi #innflytjendum #spánverjar #ólöglegum

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-04-21-spanverjar-synda-gegn-brottvisunarstraumnum-og-bjoda-ologlegum-innflytjendum-dvalarleyfi-473327

📰 Aðrar fréttir

Þúsund ára mynt seld á 2,5 milljónir íslenskra króna
📅 28.10.2026 👁️ 2
Þúsund ára mynt seld á 2,5 milljónir íslenskra króna
Þúsund ára gömul mynt frá tíma danska konungsins Sveins tjúguskeggs, sonar Haraldar blátannar, var seld á uppboði á þriðjudag fyrir 18.300 evrur, eða ...
Luxury cruise passengers stranded in Cambodia due to soaring fuel costs
📅 28.10.2026 👁️ 2
Luxury cruise passengers stranded in Cambodia due to soaring fuel costs
The Villa Vie Odyssey suspends its voyage and is working with passengers on "temporary living arrangements".
Neil Young sues Trump for playing Rockin' in the Free World at a rally without a licence
📅 28.10.2026 👁️ 2
Neil Young sues Trump for playing Rockin' in the Free World at a rally without a licence
The Canadian-American musician sued Trump in 2020 over unauthorised use of song at a political event.
100 þúsund flýja undan fellibylnum Arnab
📅 28.10.2026 👁️ 3
100 þúsund flýja undan fellibylnum Arnab
Hátt í 100 þúsund manns hafa neyðst til að flýja heimili sín á suðausturströnd Indlands eftir að hitabeltisfellibylurinn Arnab kom að landi í dag. Fel...
Israeli exit polls suggest no clear winner in pivotal general election
📅 28.10.2026 👁️ 3
Israeli exit polls suggest no clear winner in pivotal general election
Two polls project that veteran PM Benjamin Netanyahu and former military chief Gadi Eisenkot are tied, with neither winning a majority.
Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
📅 28.10.2026 👁️ 2
Flávio Bolsonaro flúinn til Bandaríkjanna
Forsetaframbjóðandinn Flávio Bolsonaro, sem laut í lægra haldi í forsetakosningunum sem haldnar voru í Brasilíu á sunnudaginn, hefur flúið land.Bolson...
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
📅 28.10.2026 👁️ 2
UK weather: Fog and mist to create dangerous driving conditions
After storms across the UK, the weather is set to turn calmer with mist and fog at times over the coming week.
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
📅 28.10.2026 👁️ 3
The maths bust-up fuelling fears that AI is undermining science
AI has made some awesome scientific discoveries. But now, questions are being raised about its accuracy
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
📅 28.10.2026 👁️ 2
'No clear winner' in Israel election - what happens now?
Polls have closed in the Israeli election, but there is no clear winner.
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir
„Það er ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. „Það er...
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Tekur við Bolsonaro opnum örmum - Vísir
Bolsonaro hefur enn ekki formlega játað ósigur í kosningunum sem fóru fram um helgina. Flokkur hans, Frjálslyndisflokkurinn, hefur þó viðurkennt sigur...
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Munda fall­byssurnar við landa­mærin - Vísir
Á eina fallbyssuna eru skilaboð sem hafa verið þýdd sem: „Gereyðið bandarísku heimsvaldasinnunum, svornum óvinum kóresku þjóðarinnar.“ Talið er að Nor...
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
📅 27.10.2026 👁️ 3
Féll fyrir gullfallegum förðunarfræðingi en endaði óvart með að þvætta pening fyrir alþjóðleg glæpasamtök
Texasmaðurinn Garrick Stafford hafði varið heilu sumri í að skiptast á skilaboðum við dömu sem hann kynntist á netinu, rauðhærðan förðunarfræðing að n...
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Andri ósáttur við partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
📅 27.10.2026 👁️ 3
Skildi fjögur börn ein eftir heima og fór til Las Vegas – Eitt barnið slasaðist á höfði
Fimmtug kona í Flórída fylki í Bandaríkjunum hefur verið handtekin fyrir alvarlega vanrækslu fjögurra barna sinna. Skildi hún þau ein eftir heima á me...
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
📅 27.10.2026 👁️ 3
Sendiherra Kúbu segir hert viðskiptabann vera þögult stríð
Neyð á Kúbu hefur aukist eftir að Bandaríkjastjórn herti í ársbyrjun á viðskiptabanni sem hefur verið í gildi í yfir sex áratugi. Á Allsherjarþingi Sa...
Brúin leggur af stað yfir ána
📅 27.10.2026 👁️ 4
Brúin leggur af stað yfir ána
Það tekur um tíu daga að draga nýja Ölfusárbrú yfir ána, á sinn stað. Ferðalagið nemur 330 metrum og hún fer um fimm metra á klukkustund.Brúin var smí...
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
📅 27.10.2026 👁️ 3
Uppistandari gerir grín að viðbrögðum Íslendinga
Uppistandarinn sprenghlægilegi Sarah Millican gerir stólpagrín að viðbrögðum Íslendinga við heiti á sýningunni hennar þegar hún kom fyrst til landsins...
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Haft á­hrif með því að „standa í lappirnar gagn­vart tæknirisunum“ - Vísir
„Við vorum að fylgja eftir samtali sem við áttum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu en þessi sami hópur, forsæti...
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
📅 27.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Andri ósáttur partístandið í Hlöðunni – Bassadrunur, kassagítargaul og ölvað fólk ráfandi um
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, er á meðal þeirra sem leggjast gegn óbreyttri starfsemi veislusalarins Hlöðunnar á...
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Hildi og Inga Þór sagt upp - Vísir
„Á meðan ég var í flugi fékk ég fundarboð, sem ég eðlilega sá ekki, og í rúllustiga á flugvelli á leið í lest fékk ég uppsagnarbréf frá Reykjavíkurbor...
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
📅 27.10.2026 👁️ 3
Trump says US voter fraud is 'rampant' - evidence suggests it is extremely rare
As the US president casts doubt on the security of the midterm elections, BBC Verify examines his claims.
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
📅 27.10.2026 👁️ 3
Sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir 18 ár í starfi
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var ein þeirra sem sagt var upp hjá Reykjavíkurborg í dag. Hún greinir frá þessu í færslu á Facebook.Hildur hafði star...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?
Þingkosningarnar 3. nóvember gætu ráðið því hvort Donald Trump fær að fara sínu fram næstu tvö árin eða hvort bandaríska lýðveldið veitir honum loksin...
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
📅 27.10.2026 👁️ 4
Þrjú dekk sprungu á bílaleigubílnum – „Algjört ábyrgðarleysi að leigja út svona bíl“
Erlendir ferðamenn eru rjúkandi reiðir eftir að hafa leigt bílaleigubíl á Íslandi. Dekkin voru í svo slæmu ástandi að þrjú þeirra sprungu á stuttum tí...
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fjárfesta í gagnaverum fyrir 57 milljarða á þessu ári
Fjárfestingar gagnaveranna hafa mikil áhrif á allar hagtölur. Í greiningu Óskars Hrafnssonar, hjá Greiningu Íslandsbanka, sem kom út í dag kemur fram ...
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ - Vísir
Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn, en að um er að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda....
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
📅 27.10.2026 👁️ 3
Alexander brothers each sentenced to 30 years in prison for sex trafficking case
The trio - two of whom were high-profile US real estate moguls - were found guilty using their social status to lure women to parties and then raping ...
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
📅 27.10.2026 👁️ 4
Eisenkot með nauma yfirburði í útgönguspám
Hvorki meirihluti Benjamíns Netanyahu forsætisráðherra né stjórnarandstöðublokk Gadis Eidenkot geta myndað þingmeirihluta samkvæmt útgönguspám í Ísrae...
Trump stóreykur losun metans
📅 27.10.2026 👁️ 4
Trump stóreykur losun metans
Trump stóreykur losun metans Banda­ríkja­for­seti losar um reglur sem eiga að hindra að metan ber­ist í and­rúms­loftið við olíu­vinnslu. Efnið veldur...
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Enginn skýr sigur­vegari í útgönguspám - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun katörsku fréttaveitunnar Al Jazeera en þar segir einnig að samkvæmt ísraelsku sjónvarpsstöðinni Channel...
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
📅 27.10.2026 👁️ 4
Ceasefire extended across Ukraine's Kherson region, officials say
The truce was originally planned for the stranded residents of Oleshky, and Russia and Ukraine say no breaches have been reported.
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
📅 27.10.2026 👁️ 4
16 milljónir á mánuði fyrir eitt barn
Við sitjum í stofu í fjölbýlishúsi í Grafarvogi. Fjölmargar myndir af ungum manni prýða þar veggi og borð.„Hann var náttúrulega alveg ótrúlega skemmti...
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
📅 27.10.2026 👁️ 4
King acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins
The King is on a nine-day tour that will take him to three countries, including the Bahamas, Guyana and Antigua and Barbuda.
Bahamas: King Charles acknowledges 'suffering of the past' as Caribbean tour begins

Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
📅 27.10.2026 👁️ 4
Sveinn R. Eyjólfs­son er látinn
Sveinn R. Eyjólfsson, einn stofnandi fjölmiðlanna Vísis.is, Fréttablaðsins, DV og Dagblaðsins, er látinn, 88 ára að aldri.Hann lést á Landspítalanum l...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
📅 27.10.2026 👁️ 3
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?
Hvað gerist þegar valdamesta fólk heims sýnir með orðum sínum og hegðun að það sé í lagi að niðurlægja aðra, hóta þeim eða ala á tortryggni gagnvart h...
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 4
Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z - Vísir
Elín Eyþórsdóttir og Zöe Ruth Erwin skipa hljómsveitina. Þær hafa báðar skapað tónlist hvor í sínu lagi og í öðrum hljómsveitum um árabil en hafa fund...
Lúðvík fannst ekki
📅 27.10.2026 👁️ 4
Lúðvík fannst ekki
Líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður í sprungu í Grindavík árið 2024, fundust ekki í leitaraðgerðum sem ráðist var í. Þeim verður ekki hal...
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
📅 27.10.2026 👁️ 3
Serial killer Ted Bundy linked to teenage girl's murder after 52 years
Authorities in Utah used advanced DNA technology to solve the cold case decades after the notorious killer was executed.
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildur Lilliendahl fékk uppsagnarbréf á ferðalagi eftir átján og hálft ár hjá borginni
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segist hafa fengið uppsagnarbréf frá Reykjavíkurborg í miðju ferðalagi erlendis, eftir átján og hálfs árs starf. Hún l...
Hildi sagt upp hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 4
Hildi sagt upp hjá borginni
Hildi sagt upp hjá borginni Hildur Lilliendahl Mynd: Instagram Baráttukonan og verkefnastjórinn Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var á leið til útlanda...
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
📅 27.10.2026 👁️ 4
Chris Mason: Budget needs to go some way towards delivering PM's promises
Support on the cost of living, and in particular energy bills, as well as announcments on devolution will be central to John Healey's first Budget.
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
📅 27.10.2026 👁️ 4
Dutch zookeeper dies after being mauled in leopard enclosure
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
📅 27.10.2026 👁️ 3
Dutch zookeeper dies after being mauled by leopard
The woman began her career at the park when she was 17 and had worked there on-and-off for four decades.
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
📅 27.10.2026 👁️ 4
Arion banki greiðir 280 milljónir í sátt vegna milligöngu um markaðssvik
Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér sátt vegna brota Arion banka á ákvæðum reglugerðar um markaðssvik. Fjármálaeftirlit Seðlabankans h...
280 milljónir í sekt vegna milligöngu um markaðssvik

Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Engar vís­bendingar fundist en form­legri leit lokið - Vísir
Í tilkynningu frá lögreglu þess efnis segir að aðgerðin hafi staðið yfir í sjö og hálfa klukkustund og fól meðal annars í sér að  tveir leitarmenn sig...
Allar helstu uppljóstranirnar í heimildarmynd Netflix um Matthew Perry
📅 27.10.2026 👁️ 3
Allar helstu uppljóstranirnar í heimildarmynd Netflix um Matthew Perry
Gæti nýja heimildarmyndin á Netflix um Matthew Perry verið sorglegri? Höskuldarviðvörun: Ef þú vilt ekki lesa hvað kemur fram í Netflix þriggja þátta ...
Dýna í golfhermi og 70 milljóna hagnaður
📅 27.10.2026 👁️ 4
Dýna í golfhermi og 70 milljóna hagnaður
Fyrrverandi starfsmenn einkarekins búsetuúrræðis fyrir börn með fjölþættan vanda segja eigendurna spara í þjónustu við börnin á meðan þeir hagnist sjá...