Við ræðum við Baldur Héðinsson stærðfræðing sem reiknar kosningaspána út fyrir Vísi.
Einnig fjöllum við um nýja úttekt á Menntasjóði námsmanna sem BHM lét gera þar sem svo virðist sem breytingarnar sem gerðar voru á námslánakerfinu hafi ekki allar verið til góðs.
Einnig heyrum við hvernig gekk með viðamestu þungaflutninga sögunnar sem nú eru hafnir þegar jómfrúarferðin í vindmylluflutningum var farin í nótt.
Í sportinu verður farið yfir úrslitin í körfunni í gær og spáð í spilin í handboltanum.