Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,23% í september og að ársverðbólga aukist úr 5,6% í 5,8%.
Orsakirnar eru raktar til þess að eldsneytisverð hækkaði um mánaðamótin þegar tímabundin lækkun virðisaukaskatts féll úr gildi.
Á móti komi að flugfargjöld til útlanda lækka í takt við árstíðasveiflu, en hærri komugjöld á heilsugæslu og gjöld vegna skimunar munu líka hafa áhrif í mánuðinum.