Maðurinn sem er grunaður um að hafa banað föður sínum í heimahúsi í Salahverfinu í lok júlí síðastliðnum er sonur Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingmanns Flokks fólksins. Maðurinn sem lést er Hilmar Oddur Gunnarsson, vörubifreiðastjóri og sjómaður frá Suðureyri, eiginmaður Lilju Rafneyjar. Greint er frá þessu á Vísi.Lilja Rafney, sem er sjöundi þingmaður Norðvesturkjördæmis og formaður atvinnuveganefndar, greindi frá andláti Hilmars á Facebook daginn sem hann lést.
Sonur þingmanns í haldi vegna harmleiksins í Salahverfinu