Høiby var sýknaður af ákæru fyrir tvær nauðganir en sakfelldur fyrir aðrar tvær og fyrir brot í nánu sambandi, að því er norska ríkisútvarpið greinir frá.
Prinsessusonurinn, sem er 29 ára gamall, neitaði sök í alvarlegustu ákæruliðunum, þær sem vörðuðu nauðganir og ofbeldi gegn fyrrverandi kærustu hans. Verjendur hans fóru fram á að hann fengi ekki þyngri dóm en átján mánaða fangelsi.
Mikið hefur gengið á í norsku konungsfjölskyldunni að undanförnu. Upplýst var um náið samband Mette-Marit, eiginkonu Hákons krónprins, og móður Høiby við Jeffrey Epstein, bandaríska auðkýfinginn og kynferðisbrotamanninn, í skjölum sem kennd eru við Epstein í vetur.
Þá hefur Mette-Marit þjáðst af alvarlegum lungnasjúkdóma og er nú sögð á biðlista eftir lungnaígræðslu.