Kínverska sölusíðan Temu hefur stöðvað sölu á nokkrum gerðum af sólarvörnum í kjölfar gagnrýni á getu varanna til að verjast sólinni. Frá þessu er greint á Danmarks Radio.
Ný rannsókn sýndi að nokkrar sólarvarnir frá síðunni veita alls ekki þá vörn gegn geislum sólarinnar sem lofað er.
Verja ekki gegn sólinni
Dönsku neytendasamtökin Forbrugerrådet Tænk prófuðu alls tíu sólarvarnir frá kínversku netverslununum Temu, Shein og AliExpress í samstarfi við evrópsk neytendasamtök.
Fjórar af sólarvörnunum sem voru prófaðar voru keyptar á Temu. Þar sýna niðurstöðurnar að ein af sólarvörnunum verndar alls ekki gegn sólinni á meðan tvær vernda verr en tilgreint er á umbúðunum. Aðeins ein sólarvörn veitti rétta vörn miðað við það sem lofað var. Sú sólarvörn inniheldur hins vegar efni sem er grunað um að valda hormónatruflunum.
„Við höfum fjarlægt viðkomandi sólarvarnir á meðan við bíðum eftir frekari rannsókn og höfum tímabundið stöðvað sölu á svipuðum vörum sem öryggisráðstöfun,“ segir Temu í tölvupósti.
Aðeins ein sólarvörn verndaði eins og lofað var
Í heildarprófuninni, þar sem Neytendasamtökin prófuðu tíu sólarvarnir frá bæði Temu, Shein og AliExpress, voru þrjár þeirra ekki prófaðar vegna þess að þær innihalda hormónatruflandi efni sem er ólöglegt innan Evrópusambandsins.
Af þeim sjö sólarvörnum sem eftir stóðu sýndu niðurstöðurnar að fjórar voru með sólarvarnarstuðul (SPF) á bilinu 1,2 til 1,6, sem jafngildir engri eða mjög lítilli vörn. Mælt er með því að nota vörn sem er að minnsta kosti með sólarvarnarstuðulinn 30. Tvær af sjö sólarvörnum vernda talsvert verr en fram kemur á umbúðunum. Aðeins ein sólarvörn verndaði eins og lofað var.