Sögðu já þar sem ástarsagan hófst - Vísir

Sögðu já þar sem ástarsagan hófst - Vísir

Sögðu já þar sem ástarsagan hófst - Vísir

Arna og Pablo eru bæði 29 ára gömul. Hún starfar sem framkvæmdastjóri viðskiptatengsla hjá Wisefish og Pablo er hárgreiðslumeistari hjá hárgreiðslustofunni Skugga.

Hjónin eru búin að vera saman í næstum því þrettán ár og eiga saman tvo stráka.

„Við erum það sem kaninn kallar high school sweethearts. Við kynntumst sem unglingar í high school í Kaliforníu og byrjuðum saman þar,“ segir Arna brosandi en fljótt vissu hjúin að þau vildu eyða ævinni saman. Fyrir þremur árum fór Pablo svo á skeljarnar.

Pablo og Arna trúlofuðu sig fyrir þremur árum en kynntust fyrir þrettán árum í Kaliforníu.Aðsend

„Við trúlofuðumst 25. ágúst 2023 í Ouderkerk aan de Amstel í Hollandi, sem er lítill bær rétt fyrir utan Amsterdam. Pablo var varla búinn að tala við mig allan daginn. 

Við fórum svo í göngutúr um bæinn og stoppuðum á gamalli brú. Þar fór hann niður á annað hné og bað mín. Þá fattaði ég loksins af hverju hann hafði verið svona skrítinn allan daginn,“ segir Arna hlæjandi.

Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn?

Við vorum búin að vera að skipuleggja brúðkaupið í næstum tvö ár. Mamma og pabbi skoðuðu staðsetninguna fyrir okkur árið 2024 og við bókuðum það svo stuttu seinna. 

Eftir það áttum við reglulega fundi með teyminu á staðnum og það hjálpaði okkur rosalega mikið að halda utan um allt skipulagið og vera með hlutina á hreinu.

Hjónin voru í um tvö ár að skipuleggja stóra daginn.Aðsend

Hvar hélduð þið brúðkaupið?

Við héldum brúðkaupið í golfklúbbi í San Clemente í Kalíforníu. Pablo er fæddur og uppalinn í Suður-Kaliforníu og við kynntumst þar, þannig að okkur fannst einhvern veginn mjög viðeigandi að gifta okkur þar sem sagan okkar byrjaði.

Arna ásamt brúðarmeyjum sínum í fallegu umhverfi brúðkaupsveislunnar.Aðsend

Hvernig var brúðkaupsdagurinn?

Hann var bara æðislegur frá upphafi til enda. Ég byrjaði daginn á því að gera mig til með brúðarmeyjunum mínum og við fengum hár- og förðunarfræðinga til okkar. Pablo var auðvitað búinn að lita og klippa hárið á nánast öllum áður en við fórum út, enda hárgreiðslumeistari.

Þegar ég var tilbúin hjálpuðu systur mínar og mamma mér í kjólinn og svo hittumst við Pablo í „first look“, það er að segja að við sáum hvort annað í fyrsta sinn í brúðkaupsfötunum. Við höfðum ákveðið að sjá hvort annað fyrir athöfnina til að taka aðeins stressið frá deginum og það var mjög gott að fá smá stund bara tvö saman áður en allt fór af stað.

Gestirnir byrjuðu svo að mæta um klukkan fimm. Við vorum með píanista sem spilaði á meðan fólk var að koma og svo kampavínsvegg þar sem gestir hringdu bjöllu og út komu hendur með kampavínsglös. Það var mjög skemmtilegt og vakti mikla lukku.

Kampavínsveggurinn vakti lukku.Aðsend

Svo byrjaði athöfnin klukkan 17:30. Píanistinn spilaði Virtual Insanity með Jamiroquai þegar fjölskylda Pablo byrjaði að ganga inn, svo komu brúðarmeyjar og brúðarsveinar, hringberarnir okkar sem voru strákarnir okkar Leon Óliver og Emil Berti, og svo blómastelpa og blómastrákur. Að lokum gekk ég inn með mömmu og pabba mér við hlið á meðan píanistinn spilaði Young and Beautiful.

Synir hjónanna Leon Óliver og Emil Berti sprengdu krúttskalann í sparifötunum.Aðsend

Athöfnin sjálf var rosa amerísk, sem okkur fannst ótrúlega skemmtilegt. Við vorum með athafnarstjóra sem gaf okkur saman og hann var alveg frábær. Þetta var svolítið eins og í bíómynd, með öllu þessu týpíska sem maður hefur séð í amerískum brúðkaupsmyndum. Um leið og hann var búinn að vígja okkur sem hjón birtist Mariachi-band og byrjaði að spila All You Need Is Love. Það var algjörlega fullkomið.

Eftir athöfnina fórum við í myndatöku með fjölskyldunni og nánustu vinum á meðan hinir gestirnir fóru í kokteilboð. Þar hélt Mariachi-bandið áfram að spila og boðið var upp á drykki og forrétti. Svo tók við borðhald, ræður og skemmtiatriði. 

Pablo ásamt vinum sínum eftir athöfn.Aðsend

Við vorum með brúðkaups-verkefnastjóra eða wedding coordinator sem hélt utan um tímalínuna, þannig að við þurftum í rauninni ekki að hugsa um neitt. Við skárum kökuna, áttum fyrsta dansinn okkar sem hjón og svo dönsuðum við og skemmtum okkur.

Það voru líka svo mörg lítil smáatriði sem gerðu daginn extra persónulegan. Borðanúmerin okkar voru til dæmis myndir af okkur á þeim aldri sem númer borðsins sagði til um. Á borði númer fimm voru því myndir af okkur fimm ára, á borði númer tíu vorum við tíu ára og svo framvegis.

Borðanúmerin voru mjög krúttleg.Aðsend

Við vorum líka með einkennis-drykki, Pablo var með paloma og ég spicy margaritu. Systur mínar gáfu mér nælu með myndum af ömmu og afa sem eru fallin frá, sem mér fannst ótrúlega fallegt og sérstakt að hafa með mér á deginum.

Við vorum með merkta blævængi fyrir gestina og í lok kvöldsins gátu allir tekið með sér uppáhalds nammi okkar beggja. Svo voru auðvitað tacos síðla kvölds áður en við færðum partýið yfir á bar í Old Town San Juan Capistrano.

Eitt sem gerði daginn líka mjög sérstakan var að við leigðum camcorders, svona gamlar næntís upptökuvélar. Úr upptökunum verður klippt saman brúðkaupsmyndband fyrir okkur sem verður ótrúlega skemmtileg minning að eiga.

Við fengum líka dásamlegt fólk til að fanga daginn á mismunandi hátt. Við vorum með sérstakt teymi sem tók upp allan daginn á iPhone fyrir samfélagsmiðla og náði svo mörgum skemmtilegum, óformlegum augnablikum sem við hefðum annars aldrei séð. 

Svo var fjölskylduljósmyndarinn okkar Evelyn með en hún tekur alltaf myndir af okkur þegar við förum út og náði líka ótrúlega fallegum og persónulegum myndum af okkur á þessum degi.

Arna ásamt góðum vinkonum í miklu stuði á brúðkaupsdaginn.Aðsend

Voruð þið með einhverja viðburði dagana í kringum brúðkaupið?

Já, þetta varð eiginlega að heilli brúðkaupsviku hjá okkur. Sunnudaginn fyrir brúðkaupið var ég með brúðarsturtu fyrir amerísku vinkonur mínar og fjölskyldu. Það var haldið á litlu tehúsi í Los Rios í San Juan Capistrano og var ótrúlega krúttlegt.

Á þriðjudeginum vorum við svo með gæsun og steggjun, eða Bachelorette og Bachelor boð. Systur mínar, Ásta og Elfa, skipulögðu daginn fyrir mig og kærastarnir þeirra, Ísak og Ismail, skipulögðu daginn fyrir Pablo.

Pilates á ströndinni sló í gegn.Aðsend

Við stelpurnar byrjuðum daginn á Pilates niðri við ströndina þar sem Margrét Hörn, litla frænka mín og lærður pilates kennari, sá um æfinguna. Svo fórum við allar saman í sundlaugina, slökuðum aðeins á og fórum svo að græja okkur fyrir kvöldið. Þá kom partýrúta og sótti okkur og við fórum niður á Newport Beach, þaðan í bát og svo út að borða. Fullkominn dagur!

Strákarnir fóru hins vegar að skjóta, reyktu vindla og fóru í tequila-smökkun, þannig að dagarnir okkar voru frekar ólíkir.

Daginn fyrir brúðkaupið vorum við svo með móttökuveislu á ströndinni í Dana Point. Þar komu allir Íslendingarnir saman í strandpartý og það var rosalega gaman að fá alla saman áður en stóri dagurinn byrjaði.

Það var líf og fjör í kringum brúðkaupið.Aðsend

Daginn eftir brúðkaupið buðu foreldrar Pablo svo öllum heim í Carne Asada. Þar var boðið upp á tacos, guacamole, mexíkóskan bjór og nóg af tequila. Það var eiginlega fullkomin leið til að enda vikuna og fá að hitta alla aftur í aðeins afslappaðra umhverfi.

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Já, við vorum eiginlega ótrúlega sammála um allt. Okkur langaði bæði að brúðkaupið yrði blanda af þessum þremur menningarheimum sem eru stór hluti af lífinu okkar, Íslandi, Mexíkó og Bandaríkjunum. 

Við vildum að þetta væri áþreifanlegt í gegnum daginn án þess að vera eitthvað of þvingað og okkur fannst það heppnast mjög vel.

Dagurinn var algjörlega í anda brúðhjónanna.Aðsend

Hvað fannst ykkur mikilvægast í skipulaginu?

Okkur fannst mikilvægast að fólk skemmti sér og að dagurinn endurspeglaði okkur hjónin. Við vildum ekki vera of föst í því hvernig brúðkaup ætti að vera heldur velja hluti sem okkur fannst skemmtilegir og persónulegir.

Svo var líka mjög mikilvægt fyrir okkur að gera meira úr þessu en að hafa þetta bara í einn dag. Um sjötíu manns voru að fljúga alla leið frá Íslandi til að vera með okkur og okkur langaði að nýta tímann með þeim. 

Þess vegna endaði þetta eiginlega sem heil brúðkaupsvika þar sem allir fengu tækifæri til að kynnast, eyða tíma saman og njóta Kaliforníu með okkur.

Arna ásamt Katrínu Kristinsdóttur vinkonu sinni í aðdraganda brúðkaupsins.Aðsend

Hvaðan sóttuð þið innblástur?

Ég var mikið á Pinterest og bjó til sérstakar möppur fyrir nánast allt. Svo sýndi ég Pablo hvað ég var að pæla og honum fannst yfirleitt allt flott, þannig að það gekk mjög vel. Innblásturinn fyrir heildar stemninguna kom líka frá mexíkóskum brúðkaupum.

Arna var dugleg að skoða Pinterest fyrir innblástur.Aðsend

Hvað stendur upp úr?

Það er mjög erfitt að velja eitt atriði því það gerðist svo margt. Athöfnin stendur auðvitað mikið upp úr, sérstaklega augnablikið þegar Mariachi-bandið birtist og byrjaði að spila All You Need Is Love.

Það sem stendur kannski mest upp úr er bara stemningin í heild sinni. Það var svo góð stemning í hópnum alla vikuna og ótrúlega gaman að sjá vini okkar og fjölskyldur frá Íslandi og Bandaríkjunum koma svona saman.

Svo fannst okkur líka mjög gaman að hitta alla aftur daginn eftir brúðkaupið. Þá var allt stressið búið og við gátum bara setið og notið þess að vera með öllum í afslöppun.

Örnu þótti vænt um að allt nánasta fólk hennar og Pablos gæti komið saman.Aðsend

Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði?

Foreldrar mínir og systur sáu um veislustjórn og við vissum í rauninni ekkert hvað þau voru búin að plana. Það voru nokkrar ræður frá fjölskyldu og vinum og systur mínar gerðu mjög fyndið myndband um sambandið okkar Pablo í gegnum árin. Svo tók Sveppi La Bamba til að rífa upp stemninguna og það klikkaði auðvitað ekki.

Brúðurin var í skýjunum með alla vikuna.Aðsend

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Í rauninni kom nánast allt sem gerðist í veislunni okkur á óvart. Við vissum ekkert hvað fjölskyldan okkar var búin að plana og það var mjög skemmtilegt, sérstaklega af því að við vorum búin að taka þátt í að skipuleggja nánast hvert einasta smáatriði í öllu hinu.

Það var því mjög gaman að geta bara sleppt takinu, setið og notið þess að sjá hvað þau voru búin að undirbúa fyrir okkur.

Það var kærkomið fyrir brúðhjónin að geta sleppt tökum á skipulagi á brúðkaupsdaginn og notið hans í botn.Aðsend

Hvað voru margir gestir?

Það voru um 140 gestir, þar af helmingur frá Íslandi sem okkur fannst alveg ótrúlegt.

Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir það?

Ég var með frekar ákveðna hugmynd um hvernig kjól mig langaði í og mér fannst úrvalið á Íslandi frekar takmarkað miðað við það sem ég var að leita að. Mig langaði sérstaklega í kjól með V-laga mittismál og ferningslaga hálsmál.

Við Pablo vorum búin að bóka ferð til Kaliforníu í september árið áður til að fara í kökusmökkun og velja blómin, þannig að ég ákvað að nýta ferðina líka til að fara að máta kjóla. Ég fann svo kjólinn minn þar.

Arna fann kjólinn í Kaliforníu.Aðsend

Ég sótti innblásturinn aðallega á Pinterest, eins og með svo margt annað í brúðkaupinu. Mér finnst það alltaf mjög góður staður til að byrja þegar maður veit sirka hvað maður vill en þarf að sjá mismunandi hugmyndir til að púsla öllu saman. Ég hafði líka mjög gaman af því að plana föt fyrir alla viðburðina í kringum brúðkaupið.

Það var mikið fjör hjá Örnu að velja föt fyrir alla dagana, sem öll voru í brúðarþema.Aðsend

Varstu með fataskipti?

Já, ég fór í styttri kjól seinna um kvöldið.

Arna skipti yfir í partýkjól fyrir dansgólfið.Aðsend

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Að búa til góðan tékklista. Það eru svo ótrúlega margir litlir hlutir sem þarf að muna og milljón boltar á lofti á sama tíma. Mér fannst mjög gott að vera með einn lista þar sem ég gat haldið utan um allt og hakað við jafnóðum.

Svo myndi ég líka segja að reyna að njóta ferlisins og ekki stressa sig of mikið á litlu hlutunum. Þegar dagurinn kemur pælir maður miklu minna í þessum litlu smáatriðum en maður hélt að maður myndi gera.

Arna mælir með góðum tékk-lista og alvöru nú-i.Aðsend

Hvernig er tilfinningin að lenda eftir svona veislu?

Við erum eiginlega enn að lenda eftir þetta allt saman. Við eigum meira að segja enn eftir að setjast niður og lesa öll kortin og fallegu orðin sem við fengum. 

Við afþökkuðum gjafir frá öllum þeim sem flugu frá Íslandi. Okkur fannst það meira en nóg að fólk væri að leggja á sig ferðalagið alla leið til Kaliforníu til að vera með okkur. 

Í staðinn báðum við alla um að skrifa okkur kort með fallegum orðum og hjónabandsráðum og við eigum eftir að setjast niður saman og lesa þau.

#hófst #sem #sögðu #ástarsagan #þar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262922764d/sogdu-ja-thar-sem-astarsagan-hofst

📰 Aðrar fréttir

Þrjú látin eftir árásir Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu
📅 08.10.2026 👁️ 1
Þrjú látin eftir árásir Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu
Yfirvöld í Sádí-Arabíu segja að þrír óbreyttir borgarar hafi verið drepin og að 36 hafi særst í árásum á tvo alþjóðaflugvelli sem Hútar hafa lýst ábyr...
Virðist ekki muna eftir aftökunni
📅 08.10.2026 👁️ 1
Virðist ekki muna eftir aftökunni
Lögmaður Christu Pike segir að legið hafi við því að hún yrði tekin úr öndunarvél eftir að hún var lögð inn á spítala og áður en hún komst til meðvitu...
Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
📅 08.10.2026 👁️ 2
Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni
Ólétt kona á fimmtugsaldri fannst látin á heimili sínu í Kentucky. Hafði kviður hennar verið ristur upp og fóstrið fjarlægt úr legi hennar.Breska blað...
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
📅 07.10.2026 👁️ 2
Vestnorrænir leiðtogar funduðu í fyrsta sinn
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fundaði í dag með leiðtogum Færeyja og Grænlands sem eru staddir hér á landi á fyrsta fundi oddvita vestnorrænu...
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Eritrea skiptir um lið og sendir her­menn inn í Tigray - Vísir
Leiðtogar Frelsisfylkingarinnar lýstu því yfir í síðasta mánuði að þeir hefðu gert bandalag við aðrar fylkingar í Eþíópíu og saman ætluðu þessar fylki...
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 2
VR hyggst segja upp kjarasamningum á morgun
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að kjarasamningum félagsins verði sagt upp á morgun að öllu óbreyttu. Stjórn VR kom saman síðdegis í dag og lauk...
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
📅 07.10.2026 👁️ 2
We spent thousands on a Tui river cruise but ended up on coach trips
Passengers have described their anger after their itineraries changed to involve hours spent on coach trips instead.
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
📅 07.10.2026 👁️ 2
Burnham and Merz to hold security talks in Berlin
Downing Street said deeper co-operation in the face of rising hybrid threats from Russia would be high on the agenda during Burnham's first official v...
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
📅 07.10.2026 👁️ 2
Bank of England reveals the four animals to feature on banknotes
The decision comes after nearly half a million people cast their votes from a shortlist of 18 creatures.
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
📅 07.10.2026 👁️ 3
„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“
Ekki myndu allir sætta sig við 10 þúsund krónur í laun fyrir einn og hálfan vinnudag. Þetta þurfa þó þeir pistlahöfundar sem taka þátt í Uppástandi á ...
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
📅 07.10.2026 👁️ 3
Samþykktu einróma að slíta kjarasamningum á morgun
Stjórn VR samþykkti einróma í kvöld að slíta kjarasamningum á morgun. Frá þessu greinir Vísir.Halla Gunnarsdóttir formaður VR segist ekki skynja vilja...
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
📅 07.10.2026 👁️ 3
Segir orð sín um „heimskulegt“ frumvarp hafa verið tekin úr samhengi
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir ummæli sín um frumvarp stjórnvalda um leiguvernd hafa verið tekin úr samhengi að einhverju leyti.Ásgeir sagði í ...
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
📅 07.10.2026 👁️ 3
Former Venezuelan President Nicolás Maduro expected to face more charges this week
The new charges are expected to accuse Maduro and his wife of playing a role in the torture of Americans in Venezuelan prisons, US media reports.
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
📅 07.10.2026 👁️ 3
Byggðaráð vill ekki breyta Valaskjálf í bæjarskrifstofur
Byggðarráð í Múlaþingi hefur mælt gegn því að sveitarfélagið kaupi Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum undir bæjarskrifstofur. Íbúar hafa undanfarið lýst ó...
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
„Ég var með fund í stjórn VR þar sem var einróma samþykkt að slíta kjarasamningum á morgun,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í samtali við Vísi....
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
Samkvæmt svörum frá Reykjavíkurborg er unnið að gerð deiliskipulags á grundvelli hönnunarforsendna fyrir nýjan leikskóla. Ekki liggi þó enn fyrir enda...
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
📅 07.10.2026 👁️ 4
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
Nkumba Ludovic Tshiembe, 31 árs, hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir árásina á sænska lögreglumanninn og tveggja barna föðurinn Christian Zed...
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
Ummæli Donald Trump Bandaríkjaforseta um árásir Írans á tvær borgir í Kaliforníu hafa vakið hörð viðbrögð og þá sérstaklega hjá pólitískum andstæðingu...
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
📅 07.10.2026 👁️ 4
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
Lawyers say the convicted killer was surprised to have survived and remained "shackled" to her hospital bed.
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
„Þá mátt ekki sýna forsetaembættinu vanvirðingu,“ sagði Trump við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag. Forsetinn var spurður út í ummæli hans um að ef Demó...
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
📅 07.10.2026 👁️ 4
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
Erik Brynjolfsson er einn kunnasti hagfræðingur Bandaríkjanna þegar kemur að mati á efnahags- og félagslegum áhrifum gervigreindar á vinnumarkað. Hann...
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
Nýi leikvangurinn var gefinn út í gær, þriðjudag, samhliða uppfærslu á leiknum þar sem nýtt efni var kynnt til leiks. Overwatch er fjölspilunarleikur ...
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
„Það eru auðvitað vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk,“ segir Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, í samta...
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
Þróun gervigreindarlíkana fleygir fram á ógnarhraða. Árið 2023 töldu tæplega 3.000 sérfræðingar að það gæti tekið allt að 27 ár fyrir gervigreind að l...
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
Maður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um loftferðir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum...
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
Meðal annars hafa borist ábendingar um að slökkt sé á ljósastaurum á Sæbraut og í Breiðholti. Frá Vegagerðinni, sem heldur utan um ljósastaura við sto...
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
📅 07.10.2026 👁️ 4
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli við JL-húsið við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu. Unnið er a...
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
📅 07.10.2026 👁️ 4
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í JL-húsinu við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu...
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
📅 07.10.2026 👁️ 4
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
Bilun er í ljósastaurum víða um borgina. Vegagerðin segir að tilkynnt hafi verið um bilanir á Sæbraut og Miklubraut og að unnið sé að viðgerðum. Vegag...
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
📅 07.10.2026 👁️ 4
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
Memorial events have taken place in Israel on the third anniversary of the Hamas-led attack that sparked the devastating Gaza war.
Engin brottfararstöð í desember
📅 07.10.2026 👁️ 4
Engin brottfararstöð í desember
Ljóst er að opnun brottfararstöðvar fyrir útlendinga í Reykjanesbæ tefst um að minnsta kosti nokkra mánuði. Hana átti að opna eftir minna en tvo mánuð...
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
Sigríður Margrét er fimmtíu ára gömul og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til kvenna í kringum sig. Sömuleiðis er hún dugleg að lesa tískutímarit...
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
„Við söfnuðum yfir 100 undirskriftum og fundum hentugt húsnæði í Reykjavík til að opna kjörstað fyrir komandi kosningar í Serbíu, eins og kosningalög ...
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
📅 07.10.2026 👁️ 2
Watch: What we know about Christa Pike's 'shock' recovery
The US death row inmate's legal team said at a press conference that she is now "conscious and speaking" after her failed execution.
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, er harðlega gagnrýndur fyrir að segja að Hamas njóti stuðnings á Vesturlöndum þar...
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
Í dag eru þrjú ár síðan Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Íbúar Gaza vöknuðu við árásir snemma morguns sem m...
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
📅 07.10.2026 👁️ 4
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun til framtíðar í menntamálum, Blásum byr í seglin, og þau verkefni sem ráðast þarf í til að...
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
📅 07.10.2026 👁️ 4
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
Kötturinn Dreki fer ránshendi um Vesturbæinn í Reykjavík, tekur ýmislegt ófrjálsri hendi - en sinnir líka hreinsunarstörfum.„Hann er þjófóttur kisi. H...
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborði Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til a...
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
Högni Alvar Harðarson Önnuson er formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, en hann útskýrir í samtali við Vísi að félagið bjóði um þessar...
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
Craig Morris was sentenced to three years and nine months in prison at Northampton Crown Court.
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. júní síðastliðinn og skiptum lokið þann 23. sep...
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
📅 07.10.2026 👁️ 4
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
Eigandi lóðar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann kærði breytingu á deiliskipulag fyrir byggðina s...
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
📅 07.10.2026 👁️ 4
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
Maricarmen Abascal, 87, was forcibly removed on a stretcher from her apartment of more than 70 years in September.
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
📅 07.10.2026 👁️ 4
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
Fyrstu umræðu um áðurnefnd húsaleigulög ríkisstjórnarinnar, sem oft eru kölluð leigubremsa, var fram haldið á Alþingi í dag en stjórnarandstaðan vildi...
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
📅 07.10.2026 👁️ 4
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
Man charged with 13 attempted murders including British child
📅 07.10.2026 👁️ 4
Man charged with 13 attempted murders including British child
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 4
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
Magnús Þór var framsögumaður á blaðamannafundi Kennarasambandsins sem fór fram í Réttarholtsskóla í dag. Þar kynnti hann stefnumótun og áherslur samba...