Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
Rabbíni gyðinga á Íslandi virðist hafa safnað 436 milljónum króna frá nafnlausum styrkjendum til að kaupa og reka menningarmiðstöð gyðinga við Hverfisgötu í Reykjavík. Fjárfestir sem er á svörtum lista í Bretlandi vegna tengsla við Rússland klippti á borðann. Hann hefur styrkt uppkaup á heimilum Palestínumanna til að stækka byggðir gyðinga.
Þegar ný menningarmiðstöð gyðinga var opnuð í gamla Framsóknarhúsinu við Hverfisgötu þann 7. júlí síðastliðinn, mátti sjá mynd á miðlinum chabad.org þar sem Eugene nokkur Shvidler klippir á rauðan borða. Á sama miðli má lesa að kvöldinu hafi lokið með þökkum til styrktaraðila sem „með örlæti sínu hafi byggt miðstöðina, þar á meðal Eugene Shvidler, sem með framtíðarsýn, forystu og örlæti, hafi hjálpað til við að þróa miðstöðina úr hugmynd í byggingu sem fólk gæti raunverulega gengið inn í og fagnað gyðinglegu lífi.“
Ekki kom fram að Eugene Shvidler er á svörtum lista breskra yfirvalda vegna tengsla hans við Rússland og eignir hans þar voru frystar, þar á meðal annars sveitasetur, íbúðir og flugvél.
Heimildin leitaði svara við því hver hefði fjármagnað miðstöð gyðinga á Íslandi, meðal annars kaup á húsnæði og fyrirhuguðum endurbótum. Rabbíninn, sem svaraði hvorki símtölum né hringdi til baka eftir að skilaboðum hafði verið komið áleiðis, …