Það á ekki af hertogaynjunni Meghan Markle að ganga. Það nýjast er að breska konungsfjölskyldan brást ekki opinberlega við 45 ára afmæli Markle á þriðjudag. Ástæðan er einföld, Markle er ekki lengur starfandi meðlimur fjölskyldunnar, að sögn margra sérfræðinga.„Afmælisóskir til einstaklings yrðu sendar í einkaskilaboðum,“ sagði konunglegi fréttaskýrandinn Tom Sykes, og vísar þar til ákvörðunar Markle og eiginmanns hennar, Harry Bretaprins, árið 2020 um að segja sig frá konunglegum skyldum.
Sniðgengin opinberlega af konungsfjölskyldunni á afmælisdaginn