„Þetta voru slagsmál milli tveggja aðila sem þekkjast. Annar þeirra lá eftir blóðugur og með áverka,“ segir Heimir en í dagbók lögreglu í morgun kom fram að einn hefði verið kærður fyrir stórfellda líkamsárás.
Tilkynnt var um slagsmálin um klukkan 18.30 í gærkvöldi.
Heimir segir í samtali við fréttastofu að hinn hafi verið farinn af vettvangi en það sé vitað hver það er. Hann segir málið til rannsóknar og verði skoðað.