Slagsmál brutust út á milli tveggja ökumanna eftir umferðaróhapp á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Annar þeirra var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um verkefni dagsins í dag.
Þar segir að maðurinn hafi verið laus að lokinni blóðsýnatöku.
Tilkynning um málið barst á lögreglustöð þrjú sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti.