Margir annmarkar voru á frágangi björgunarbáts strandveiðibáts sem sökk úti fyrir Patreksfirði síðasta sumar. Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA) sem var birt í dag.
Strandveiðibáturinn Ormurinn langi sökk úti fyrir Patreksfirði 30. júní 2025. Magnús Þór Hafsteinsson, sjómaður og fyrrverandi þingmaður, lést.
Í skýrslunni eru taldir upp ýmsir annmarkar, meðal annars breytingar á Orminum langa sem ekki voru í samræmi við skráningu og ófullnægjandi eftirlit með gúmmíbjörgunarbáti.
Magnús féll frá borði en nærstaddur bátur reyndi að koma honum til bjargar. Skipstjóra bátsins tókst ekki að hífa Magnús um borð og brá á það ráð að binda hann við síðu bátsins og sigla rólega til móts við björgunarskipið Vörð II. Magnús var við meðvitund í fyrstu og var hífður um borð þar sem endurlífgunartilraunir hófust. Þær báru ekki árangur.
Samkvæmt skýrslunni voru veður og öldulag daginn sem Magnús lést slæm og sjósókn lítilla báta varhugaverð. Líklegt er að rafgeymar hafi skert sjóhæfni Ormsins langa, auk þess sem bátnum var siglt í gegnum Blakksnesröstina, sem getur verið smærri bátum hættulegt, þótt siglingin til hafnar sé styttri.
Ófullnægjandi eftirlit með gúmmíbjörgunarbátum
Samgöngustofa hóf athuganir á frágangi gúmmíbjörgunarbáta vegna ábendingar RNSA í tengslum við rannsókn þeirra á banaslysinu.
Ekki er hægt að fullyrða að Magnús hefði komist lífs af ef björgunarbúnaður hefði virkað, en ljóst er að búnaðurinn virkaði ekki. Skoðunarmaður gúmmíbjörgunarbátsins var kallaður í viðtal og hann beðinn um að lýsa verklagi skoðunar. Niðurstöður úr úrtaksskoðunum Samgöngustofu á gúmmíbjörgunarbátum sem eftirlitsaðilinn fór yfir leiddu í ljós að þær hefðu ekki verið í samræmi við verklag.
Athuganir urðu til þess að Samgöngustofa svipti á annað hundrað skip hæffærisskírteini vegna ófullnægjandi frágangs björgunarbáta. Öll skipin voru þjónustuð af sama fyrirtækinu. Það skilaði inn starfsleyfi sínu og skoðanir þess voru ógiltar.
Margt kom í veg fyrir að björgunarbáturinn virkaði
Rannsakandi frá RNSA var með í för á varðskipinu Freyju er Ormurinn langi var hífður upp af hafsbotni. Gúmmíbáturinn hafi enn setið í stæði á Orminum langa á hafbotni og ljóst að sjósleppiloki hafi ekki skorið hann lausan og hann blásið upp þegar skipið sökk.
Hann hafi aftur á móti losnað þegar verið var að hífa bátinn upp af sjávarbotni en ekki blásist upp. Björgunarhringur Ormsins langa hafi heldur ekki losnað þar sem hann var festur í stæði með einangrunarlímbandi.
Þegar gúmmíbjörgunarbáturinn var skoðaður nánar kom í ljós að vír, sem tengir loftflösku og blæs hann upp, var ótengdur. Þá var loftflaskan einnig gölluð. Margt hafi því komið í veg fyrir að báturinn hafi blásið upp.
Óskráðar breytingar höfðu áhrif á stöðugleika
Þá kom einnig í ljós við skoðun á Orminum langa að ýmislegt var ekki í samræmi við skráningu bátsins hjá Samgöngustofu.
Umtalsverðar breytingar hafi verið gerðar á bátnum án samþykkis. Kassa var bætt við á skut bátsins sem jók lengd hans um nærri einn metra. Ekki liggja fyrir upplýsingar um það hvenær bátnum var breytt.
Breytingarnar hefðu kallað á endurmat á stöðugleika hans. Útreikningar skipaverkfræðings sýndu fram á að breytingarnar hefðu haft neikvæð áhrif á stöðugleika bátsins þegar sjór komst inn í kassann.
Samgöngustofa herðir eftirlit
Samgöngustofa hefur nú þegar ráðist í úrbætur og réðst í hertara eftirlit með skoðunarstöðvum sem hefur leitt til þess að haffæri var tekið af bátum sem annar þjónustuaðili skoðaði. Til að mynda hafa tveir eftirlitsmenn sótt námskeið hjá gúmmíbjörgunarbátaframleiðanda til að styrkja eftirlitið og framvegis verða framkvæmdar fyrirvaralausar skyndiskoðanir á starfsemi þjónustuaðila.
Áður hafa vaknað umræður um björgunarbáta en málið var síðast til umræðu fyrir um áratug. Annar björgunarbáta Jóns Hákons, sem fórst á Vestfjarðamiðum 2015, virkaði ekki. Skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna sagði í framhaldinu að taka þyrfti björgunarbúnað til gagngerrar endurskoðunar og ganga úr skugga um að búnaðurinn virkaði sem skildi. Eins komu fram dæmi þess að gúmmíbátar væru festir niður, líkt og Kastljós fjallaði um 2016.