„Þetta eru auðvitað háar tölur,“ segir Dagur B. Eggertsson um þær upphæðir sem fram komu í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem birtist í gær.
Samantekt hennar sýndi að tuttugu stærstu sjávarútvegsfyrirtækin áttu rúma 400 milljarða í öðrum rekstri í lok árs 2024. Fjórar útgerðir eiga um tvo þriðju þeirrar upphæðar.
Það var að beiðni Dags og annarra alþingismanna sem skýrslan var unnin. Hann segir mikilvægt að upplýsingarnar í skýrslunni komi fram og að gegnsæi ríki um eignarhald í sjávarútvegi.
„Alls ekki heildarmynd“
Í skýrslunni má sjá að meirihluti eigna útgerðanna í öðrum fyrirtækjum var tilkominn vegna fjárfestinga á tíu ára tímabili. Dagur segir skýrsluna varpa ljósi á þróun sem hafi átt sér stað mjög hratt.
„Það vekur strax athygli að mjög stórar þekktar eignir sem eru í höndum eigenda útgerðarfyrirtækjanna er ekki að finna í skýrslunni,“ segir hann. „Það er strax ljóst að þetta er alls ekki heildarmynd.“
Hann tekur dæmi um þekkta eignarhluti í Eimskipum, Sjóvá og eignir tengdar Ísfélaginu. „Það er ljóst að það þarf að halda áfram til að fá heildarmynd af ítökum og eignarhaldi útvegs í íslensku atvinnulífi.“
„Furðulegt“ að tengdir aðilar séu skilgreindir öðruvísi í sjávarútvegi
Fréttastofa fjallaði um það í gær að stór eignasöfn væru undanskilin í skýrslunni vegna túlkunar á því hverjir teljist tengdir aðilar.
Ertu ósáttur við það hvernig tengdir aðilar eru skilgreindir í skýrslunni?
„Það á þá ekki grunn í skýrslunni heldur því hvernig það er skilgreint í lögum og það er sannarlega eitt af því sem þarf að skoða,“ segir Dagur.
Vegna þess hvernig tengdir aðilar eru skilgreindir í lögum segir Dagur að það virðist sem systkini eða mjög nánir aðilar geti átt hvort sitt fyrirtækið án þess að þau teljist tengd.
„Þetta var dálítið nýtt fyrir mér þegar ég tók sæti á Alþingi að átta mig á þessu. Það er eiginlega dálítið furðulegt að þingið og samfélagið hafi búið svona um hnútana – að það sé verið að skilgreina tengda aðila í sjávarútvegi á allt annan hátt en tengdir aðilar eru til dæmis skilgreindir í samkeppnislögum eða annarri löggjöf,“ segir hann.