Ríkissaksóknari hefur nú gert embætti héraðssaksóknara að gefa út ákæru í málinu. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari í samtali við fréttastofu en Nútíminn greindi fyrst frá. Hann kveðst ekki geta greint frá röksemdum ríkissaksóknara eða rætt málið efnislega.
Mál skutlarans hefur vakið talsverða athygli en Haukur Ægir Hauksson, sem var einn sakborninga í Sólheimajökulsmálinu svokallaða, var ákærður fyrir að hafa reynt að myrða hann í kjölfar kynferðisbrotsins.
Hann var í apríl í fyrra dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir líkamsárás gagnvart skutlaranum en sýknaður af ákæru fyrir tilraun til manndráps.
Svokallaðir skutlarar eru einstaklingar sem aka farþegum gegn gjaldi án þess að hafa leigubílaleyfi.
Haukur Ægir steig fram fyrr á þessu ári og kvaðst hafa verið ranglega sakaður um tilraun til manndráps. Fullyrti hann í hlaðvarpinu Brotkasti að skutlarinn hefði átt upptök að átökum þeirra með því að lemja hann og vinkonu hans með kylfu. Vinkona hans er móðir stúlkunnar sem skutlarinn áreitti.
Káfaði á stúlkunni og reyndi að kyssa
Skutlarinn var í janúar í fyrra dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa aðfaranótt laugardagsins 11. mars 2023, í bifreið sem hann ók á leið frá Hafnarstræti að ótilgreindum stað í Reykjavík, káfað á brjóstum og kynfærum stúlkunnar innanklæða og reynt að kyssa hana tungukossum.
Í dómi héraðsdóms var sérstaklega tekið fram að við ákvörðun refsingar yrði litið til þess að í framhaldi af atvikum málsins hafi verið ráðist alvarlega á manninn og hann hefði ekki enn jafnað sig fyllilega af þeirri árás.
Í nóvember dæmdi Landsréttur manninn í eins árs fangelsi og taldi, í ljósi skilorðsrofs hans á fyrri dómi og alvarleika brotsins, ekki efni til að binda refsinguna skilorði.
Fréttin hefur verið uppfærð.