Stjórnvöld í Ísrael hafa fyrirskipað niðurrif fjölda palestínskra skóla á hernumda Vesturbakkanum. Til stendur að rífa niður skólana og reisa landtökubyggðir í staðinn. Nemendur segjast lifa í stöðugum ótta um að hver skóladagur verði sá síðasti.
Í frétt norska ríkisútvarpsins NRK er greint frá raunum Sadeel Shatat, sextán ára gamallar stúlku frá Palestínu. Hún gengur í Zeif-stúlknaskólann í Masafer Yatta, í suðurhluta Hebron-héraðs á hernumda Vesturbakkanum.
Shatat segist aldrei hafa upplifað heilan skóladag án þess að velta fyrir sér hvort hann sé hennar síðasti.
„Skólinn okkar er byggður úr hjólhýsum og lítur kannski út fyrir að vera ómerkilegur, en fyrir okkur skiptir hann afar miklu máli,“ segir Shatat í samtali við NRK.
Um 250 nemendur eru í Zeif-stúlknaskólanum. Hann er sá eini á svæðinu þar sem stúlkur geta stundað nám án þess að þurfa að ferðast langa leið.
Stjórnvöld í Ísrael segja skólana ekki hafa tilskilin leyfi
Samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum höfðu ísraelsk stjórnvöld gefið út niðurrifsskipanir vegna 84 skóla á hernumda Vesturbakkanum í júní á síðasta ári. Zeif-skólinn er einn þeirra.
Hernumda Vesturbakkanum er skipt upp í ólík svæði. Á svæði C, þar sem Zeif-skólinn er, hefur Ísrael fulla stjórn á því hvað má byggja og hvar.
Þar af leiðandi þarf hver skóli sem þar stendur að fá leyfi frá ísraelskum stjórnvöldum. Samkvæmt ísraelskum mannréttindasamtökum lögðu palestínsk skólayfirvöld fram yfir þúsund leyfisumsóknir á síðasta ári. Engin þeirra var samþykkt.
Sama ár samþykktu ísraelsk stjórnvöld að reisa fleiri en 27 þúsund heimili fyrir ísraelska landtökumenn á sama svæði.
Skólastjóri segir „stórslys“ í aðsigi
Mannréttindasamtökin B'Tselem segja ísraelskum lögum um byggingarleyfi og skipulagsmál beitt með ólíkum hætti eftir því hvort Palestínumenn eða Ísraelar eigi í hlut.
Það sé meðvituð stefna ísraelskra stjórnvalda sem miði að því að þrýsta palestínskum samfélögum burt.
Ibtisam Al-Junaidi, skólastjóri Zeif-skólans til margra ára, segist óttast afleiðingar þess verði niðurrifsskipaninni framfylgt. Það yrði „stórslys fyrir menntun á svæðinu öllu“.
Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Human Rights Watch segja ofbeldi Ísraela í garð íbúa Vesturbakkans hafa aukist verulega á síðastliðnu ári. Að meðaltali séu fleiri en sex árásir á dag.
Loki fleiri skólar segir Al-Junaidi hætt við því að fjöldi nemenda neyðist til þess að hætta, þar sem of hættulegt sé fyrir börnin að ferðast langar vegalengdir til að stunda nám.