Skógareldarnir í Belgíu eru þeir verstu í sögu landsins.
Eldarnir loga í þjóðgarði, nærri landamærunum við Þýskaland, og íbúar í nærliggjandi þorpum hafa yfirgefið heimili sín.
Eldarnir brutust út á föstudag og síðan þá hafa slökkviliðsmenn notast við þyrlur við slökkvistarf.
Dregið hefur úr ákafa skógarelda sem hafa geisað í Frakklandi og Austurríki.
Mikill vindur erfiðar slökkvistarf
Mikill vindur hefur gert slökkvistarf erfitt, segir Gregory Mellotte slökkviliðsstjóri, en allt er reynt til að reyna að hefta útbreiðslu eldanna.
Bændur hafa aðstoðað við slökkvistarf.
Í Huesca, á Spáni, er enn barist við skógarelda sem hafa nú þegar brunnið á yfir fimmtán þúsund hekturum lands.
Yfir þúsund íbúar hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Bóndi sem spænska sjónvarpið ræddi við segist gera það sem hann getur til að hefta útbreiðslu eldanna, sem brenna að mestu í skóglendi.
Fjölmörg hitamet hafa fallið í hitabylgjunum sem gengið hafa yfir Evrópu í sumar. Veðuraðstæðurnar urðu til þess að vatn gufaði upp úr ám, vötnum, jarðvegi og plöntum.
Þær aðstæður auka líkur á skógareldum.
Sérfræðingar Loftslagsstofnunar Evrópu segja mánuðina júní og júlí hafa verið þá heitustu í Vestur-Evrópu frá því mælingar hófust.