Breiðafjarðarferjunni Baldri verður siglt á milli lands og Eyja næstu daga. Stefnt er að því að mæla dýpt Landeyjahafnar síðdegis.
Baldur er lagður af stað suður fyrir land og reiknað með því að hann hefji siglingar í fyrramálið samhliða Herjólfi.
G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir siglingaáætlun í höndum Herjólfs ohf. og reiknar með því að hún verði gefin út fljótlega.
„Baldur er að koma vegna þess að Vestmannaeyingar og Herjólfur ohf. töldu sig geta nýtt skipið mjög vel og það snýst ekki eingöngu um farþega, það er líka spurning um farmflutninga sem er nokkur biðlisti.“
Landeyjahöfn hefur verið lokuð í næstum þrjá mánuði vegna sandburðar. Á meðan hefur verið siglt til Þorlákshafnar sem er mun lengri leið. Herjólfur er 35 mínútur að sigla í Landeyjahöfn en tæpar þrjár klukkustundir í Þorlákshöfn.
„Þá reiknum við með og vonumst til að geta mælt dýpið núna síðdegis í dag, ef aldan gengur alveg nógu mikið niður til þess að það sé hægt. Þá vitum við betur stöðuna en eftir því sem mér skilst er Herjólfur ohf. að skoða hvort sé mögulegt að sigla í Landeyjahöfn á flóði,“ segir Pétur.
Miðað við ölduspá reiknar Vegagerðin með því að hægt verði að vinna að dýpkun í Landeyjahöfn á morgun og næstu daga. „Það vonandi verður til þess að við getum opnað höfnina almennilega.“
Baldur er varaskip
Baldur fór á milli lands og Eyja í einn og hálfan sólarhring fyrr í mánuðinum. Við það skerðast ferjusiglingar um Breiðafjörð. Ekki er siglt að Brjánslæk á Vestfjörðum en minni ferja flytur farþega og varning á milli Stykkishólms og Flateyjar.
„Að sjálfsögðu er það bagalegt fyrir þá sem nýta sér Baldur venjulega en á móti kemur að aðstæður eru einfaldlega mjög góðar núna og þetta var sett í samninginn um Baldur, hann er varaskip fyrir Herjólf,“ segir Pétur.