Erfitt er að segja til um hvort stór jarðskjálfti sem mældist við Nesjavelli í nótt sé fyrirboði um eitthvað meira. Þetta segir Steinunn Helgadóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Jarðskjálfti af stærðinni 4,1 mældist við Nesjavelli þegar klukkuna vantaði tuttugu og fjórar mínútur í eitt í nótt. Nákvæm upptök jarðskjálftans voru þrjá og hálfan kílómetra norðaustur af Skeggja á Hengli.
Þetta var stærsti skjálftinn á Nesjavöllum frá árinu 1998 og fannst vel á suðvesturhorni landsins. Lítil eftirskjálftavirkni hefur mælst.
„Skjálftavirkni er mjög algeng á þessu svæði og skjálftinn varð á þekktri jarðskjálftasprungu. Þannig að þetta er allavega sá stærsti á þessari öld,“ segir Steinunn.
Jarðskjálftar sem urðu í Húsmúla fyrr í sumar gætu tengst skjálftanum í nótt.
„Skjálftarnir sem urðu fyrr í sumar við Húsmúla, þeir gætu náttúrulega leitt til spennulosunar á öðrum stöðum nálægt en hvort þeir séu tengdir er erfitt að segja á þessari stundu,“ segir Steinunn.