Skjálftahrina varð á Reykjanesskaga í nótt og mældist sá stærsti var 2,9 stig. Alls urðu tólf jarðskjálftar rétt fyrir klukkan fjögur í nótt vestan við Eldey á Reykjaneshrygg.
Þetta staðfestir Bryndís Ýr Gísladóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.
„Þetta er ekkert óeðlilegt. Við fáum reglulega skjálftahrinur á þessu svæði,“ segir hún. Skjálftahrinan gefur ekkert til kynna um möguleg eldsumbrot, að hennar sögn.
Skjálftar skammt frá Húsafelli
Síðustu daga hafa jarðskjálftar einnig mælst á Vesturlandi, vestan við Langjökul og norðvestan við Þórisjökul, skammt frá Húsafelli.
Stærsti skjálftinn sem átti sér stað síðastliðna tvo daga var 2,5 stig. Sá varð í gærkvöldi.
Ekki er óalgengt að jarðskjálftar verði á þessu svæði, segir Bryndís.
„Það er einhvers konar brotabelti þarna sem veldur jarðskjálftum.“