Skírn eða morð

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Öfgar þekkjast á afarkostum. Tvö dæmi úr samtíma um falska afarkosti. Loftslagsvá drepur mannlíf á jörðinni verði ekki stórlega dregið úr útblæstri jarðefnaeldsneytis. Þeir sem ekki viðurkenna að kynin séu fleiri en tvö og hafna að barn geti fæðst í röngum líkama eru á móti mannréttindum.
Afarkostir eru aðdráttarafl tornæmra á blæbrigði mannlífsins með ríka þörf á trúarkenndri fullvissu.
Halldór Laxness gerir upp við falska afarkosti í Gerplu, sem skrifuð var um miðja síðustu öld. Sögusviðið er víkingaöld en viðfangsefnið samtími Halldórs. Skáldið horfði berum augum á öfgamenningu ná tökum á henni Evrópu. Sósíalismi kenndur við þjóðerni annars vegar og hins vegar stéttir hélt álfunni í heljargreipum í áratugi. Vísindi réttlættu morð á iðnaðarskala. Fórnarlömbin voru erfðafræðilegir mínusvaríantar í einn stað en í annan stað stéttaóvinir. Sósíalismi í tveim útgáfum lofaði paradís á jörð eftir fjöldamorð óæskilegra og skírn þeirra útvöldu. Öfgamenningin ól af sér foringja í vestri og aðalritara í austri. Sá fyrri var austurrískur liðþjálfi með listamannsdraum en aðalritarinn Georgíumaður er hrökklaðist frá prestnámi.
Í lok fertugasta og sjötta kafla Gerplu útskýrir Sighvatur skáldbróður sínum Þormóði kolbrúnarskáldi lyndiseinkunn öfgamanns í valdastöðu.
…hann kunni í aungum vanda utan tvö úrræði, var annað skírn en hitt morð.
Taktu trú eða vertu drepinn. Sighvatur skáld frá Apavatni er fulltrúi borgaralegs lýðræðis í samræðunni, lítur köldum augum raunsæis á skelfinguna. Hann vorkennir öfgamanninum, kennir skorti á uppeldi og menntun um grimmdina. Öfgamaðurinn sé í raun ófær til ofbeldis einn síns liðs sakir ,,barnslegrar fákænsku.“
…varð hann jafnan að hafa aðra menn sér við hönd, að segja sér hvenær skyldi skíra en hvenær höggva.
Hjálparkokkarnir eru vitanlega skírðir, hafa tekið hina réttu trú. Öfgar spretta í menningarástandi með óglögg skil reyndar og ímyndunar. Þefvísi á þá útgáfu öfganna er fær mestan meðbyr skilur á milli feigs og ófeigs. Meðreiðasveinar stökkva til er þeir sjá foringjaefni. Vita sem er að taki maður skírn í tíma opnast starfstækifæri. Fyrir utan þann bónus að halda líftórunni.
Borgaralegt lýðræði, með málamiðlunum, þófi og óvissu, er andstaða öfgamenningar sem fóstrar menn afarkostanna er Halldór lýsir í Gerplu. Taktu trú eða þér verður útskúfað er ísmeygilega algengt viðhorf í samtíma okkar.
Hjörtur J. Guðmundsson tók ekki ESB-skírn og missti atvinnuna. Helga Dögg Sverrisdóttir hafnaði trans-skírn og var ofsótt af starfsfélögum og kærð til lögreglu. Atvinnumissir og atlaga að mannorði eru brútal viðurlög í samfélagi er í orði kveðnu virðir frelsi til skoðana og tjáningar.