Morgunblaðið greinir frá þessu. Þar segir að Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefði átt að tilkynna Ólöfu Ástu sex mánuðum áður ef embættið yrði auglýst, sem var ekki gert.
Ólöf Ásta var skipuð af Ásmundi Einari Daðasyni, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, undir lok 2021 og tók við 1. janúar 2022. Hún hafði starfað hjá Barnahúsi í tuttugu ár þar á undan, þar af fjórtán sem forstöðumaður.
Hún er menntuð á sviði uppeldis- og afbrotafræði og fjölskyldumeðferðar og hefur meðal annars sérhæft sig í yfirheyrslutækni vegna skýrslutöku barna.