Þórður Már Sigfússon skipulagsfræðingur segir liti eitt vanmetnasta verkfæri borgarskipulagsins. Í grein sinni á Vísi bendir hann á að Sigvaldalitirnir séu meira en skraut.„Sigvaldalitirnir; gulur, djúpblár og hvítur, þetta eru litir sem eru meira en skraut. Þeir eru sjónræn undirskrift. Maður sér litina og hugsar: þetta er Sigvaldahús. Formið er vísbending en litapallettan staðfestir höfundareinkennin. Sigvaldi Thordarson.“
Skipulagsfræðingur segir þetta skorta í borgarskipulaginu