Leiðtogafundur NATO fór fram í Ankara í dag. Aðdragandinn að fundinum var stormasamur meðal annars vegna hernaðaraðgerða Bandaríkjamanna á Íran. Skiptar skoðanir eru í hópi aðildarríkjanna um þessar aðgerðir. Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, og Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hafa lýst yfir stuðningi sínum við nýjustu árásir Bandaríkjamanna. Trump hefur kvartað yfir viðbrögðum sumra aðildarríkja við hernaðaraðgerðunum.
Meiri samstaða virðist vera með Úkraínu en Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti var í heimsókn í Ankara í gær og dag. Úkraína fær veglegan stuðning frá 31 af 32 aðildarríkjum bandalagsins, fyrir utan Bandaríkin sem ætla þó að veita þeim áframhaldandi stuðning og leyfa þeim að framleiða Patriot-loftvarnaflaugar í Úkraínu, sem bráð vöntun er á.